Laus störf
Upplýsingar um laus störf hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Samkvæmt lögum ber ríkisstofnunum að auglýsa laus störf. Undanþágur frá auglýsingaskyldu eru takmarkaðar við ráðningar til skemmri tíma en tveggja mánaða, afleysingar sem vara skulu skemur en 12 mánuði og ráðningar í störf sem auglýst hafa verið með opinni auglýsingu innan s.l. 6 mánaða.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Hér getur almennt starfsfólk skráð almenna starfsumsókn.
Almennum starfsumsóknum er ekki svarað sérstaklega. Þær hverfa úr kerfinu eftir 6 mánuði frá síðustu uppfærslu þannig að þeir sem vilja halda umsókn sinni virkri er bent á að uppfæra hana reglulega (ekki er hægt að sækja um aftur í sama flokki).
Vinsamlegast skráið sérstakar óskir varðandi starf eða staðsetningu í reitinn annað sem þú vilt taka fram í umsókn.
Sækja þarf um auglýst störf sérstaklega.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefni og ábyrgð eru mismunandi eftir störfum.
Hæfnikröfur
Mismunandi eftir mismunandi störfum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Báran, stéttarfélag hafa gert.
Umsókninni skulu fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Starfshlutfall er 20 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 03.01.2024
Nánari upplýsingar veitir
Cecilie B. H. Björgvinsdóttir - cecilie.bjorgvinsdottir@hsu.is
HSU Skrifstofan
Árvegi
800 Selfoss
Sækja um starf
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða lækni í afleysingar á heilsugæsluna í Vík Í Mýrdal. Um er að ræða tímabundna afleysingu frá 23. júlí - 31. ágúst. Einnig er hægt að koma inn sem verktaki í nokkra daga / viku í senn yfir tímabilið.
Gott húsnæði í boði ef óskað er eftir.
Heilsugæslan í Vík er einn af níu heilsugæslum sem HSU starfrækir á Suðurlandi.
Um er að ræða afar fjölbreytt starf í dásamlegu umhverfi með skemmtilegu fólki.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd
Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda
Vaktþjónusta
Hæfniskröfur
Fullgilt íslenskt lækningaleyfi
Góð íslenskukunnátta
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Starfshlutfall er 100% eða samkomulag
Ráðningartímabil er 23.7.23 - 31.8.23
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi, fyrri störf.
Starfshlutfall er -100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.06.2023
Nánari upplýsingar veitir
Helga Þorbergsdóttir - helga.thorbergsdottir@hsu.is - 8494246
Hjúkrunarfræðingur óskast í 50% starf á heilsugæslu HSU Kirkjubæjarklaustri
Heilsugæslan á Krikjubæjarklaustri er einn af níu heilsugæslum sem Heilbrigðisstofnun Suðurlands starfrækir.
Um er að ræða afar fjölbreytt starf í dásamlegu umhverfi með skemmtilegu fólki.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi starf sem krefst mikils sjálfstæðis og haldgóðrar þekkingar
Starfið felst í almennri hjúkrun og móttöku á heilsugæslu
Auk lögbundinna verkefna á heilsugæslu sinnir heilsugæslan bráða- og slysamóttöku á dagvinnutíma og bakvöktum á heilsugæslu
Mikið er lagt upp úr góðri þverfaglegri samvinnu þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldu þeirra er höfð að leiðarljósi
Hæfniskröfur
Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun
Starfsleyfi landlæknis
Fjölbreytt starfsreynsla
Starfsleyfi sem sjúkraflutningamaður, kostur
Frumkvæði, áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Starfshlutfall er 50 % og er laust frá 1.september 2023 eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 04.07.2023
Nánari upplýsingar veitir
Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir - audbjorg.bjarnadottir@hsu.is
Smelltu hér til að sækja um starfið
Laus er til umsóknar 100% staða yfirlæknis lyflækninga á HSU - Vestmannaeyjum.
Leitað er eftir yfirlækni með víðtæka reynslu innan sérgreinarinnar og hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarf og uppbyggingu mannauðs.
Um er að ræða 18 rúma deild og sérfræðimóttöku á göngudeild á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Gerð er krafa um sérfræðiviðurkenningu í lyflækningum og æskilegt er að umsækjandi hafi að auki sérfræðiviðurkenningu í einhverri af undirsérgreinum lyflækninga þótt ekki sé það skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.08.2023
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Böðvarsson, Framkvæmdastjóri lækninga og sjúkrasviðs
sigurdur.bodvarsson@hsu.is
Sækja um hér
Vilt þú starfa á framúrskarandi vinnustað?
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða móttökuritara á heilsugæslu HSU Vestmannaeyjum í 50% starf.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í síðasta lagi 21. september n.k.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka, afgreiðsla og samskipti við skjólstæðinga.
Símsvörun, ýmiss konar umsýsla, uppgjör og skráning gagna.
Samskipti við aðrar deildir HSU.
Önnur tilfallandi störf.
Hæfniskröfur
Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg.
Starfið krefst hæfni og lipurðar í samskiptum, trúmennsku og nákvæmni í vinnubrögðum.
Viðkomandi þarf að hafa góð tök á vinnu við tölvur.
Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku máli og geta átt góð tjáskipti á ensku.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Drífandi, stéttarfélag hafa gert.
Um er að ræða dagvinnu.
Öll kyn er hvött til að sækja um.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 14.07.2023
Nánari upplýsingar veitir
Tinna Ósk Þórsdóttir - tinna.thorsdottir@hsu.is -
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir hjúkrunarfræðing á heilsugæslu Rangárþings frá 1. september n.k í afleysingu í 1 ár.
Möguleiki er á framtíðarstarfi í framhaldinu.
Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í góðum hópi á öflugri heilsugæslustöð.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í almennri hjúkrun, móttöku á heilsugæslu, heimahjúkrun, ungbarnavernd og annað sem kemur að heilsugæsluvinnu.
Mikið er lagt upp úr góðri þverfaglegri samvinnu þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingnum og fjölskyldu þeirra er höfð að leiðarljósi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Vottorð um nám frá viðurkenndri menntastofnun.
Starfsleyfi landlæknis.
Frumkvæði, áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 13.7.2023
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir, hjúkrunarstjóri - margret.y.sigurgeirsdottir@hsu.is
Starf yfirlæknis bráðamóttöku er laust til umsóknar.
Starfið er leiðtoga- og stjórnunarstarf sem felur í sér faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð á starfsemi bráðamóttökunnar. Einnig stýrir yfirlæknir bráðaþjónustu utan spítala á Suðurlandi í nánu samstarfi við yfirmann sjúkraflutninga.
Leitað er eftir sérfræðilækni með víðtæka reynslu og hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarfi, kennslu, rannsóknir, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í sérgreininni í nánu samstarfi við framkvæmdarstjóra lækninga og annað starfsfólk.
Um er að ræða fullt starf sem er bæði áhugavert og krefjandi og reynir á mikla þekkingu í læknisfræði, samskiptahæfni og fagmennsku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun bráðalækninga og utanspítalaþjónustu við HSU, þ.m.t. kennslu og vísindastarfi í samráði við framkvæmdastjóra lækninga
Fjárhagsleg ábyrgð í samráði við framkvæmdastjóra lækninga
Starfsmannaábyrgð, ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni í samráði við framkvæmdastjóra lækninga
Klínísk vinna sérfræðilæknis á einingunni
Samstarf við aðrar sérgreinar sjúkrahússins, heilsugæslu og hjúkrunarheimili
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi
Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
Umtalsverð færni og virkni á sviði bráðalækninga
Reynsla af kennslu og vísindastörfum æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Bráðamóttaka HSU er hluti af sjúkrasviði HSU og er næsti yfirmaður framkvæmdastjóri lækninga og sjúkrasviðs.
Með umsókninni skal skila ítarlegri ferilskrá þar sem fram kemur ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda í starfið.
Upphaf ráðningarsamnings er samkomulag.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 8.8.2023
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Böðvarsson, Framkvæmdarstjóri lækninga og sjúkrasviðs - sigurdur.bodvarsson@hsu.is
Almenn störf
Hér geta heilbrigðisstarfsmenn með atvinnuleyfi skráð almenna atvinnuumsókn. Umsóknir hverfa eftir 6 mánuði frá umsókn.
Vinsamlega skráðu allar sérstakar óskir varðandi starfið eða staðsetninguna í hinum reitnum sem þú vilt nefna í umsókninni. Auglýst störf þarf að sækja sérstaklega um.
Sækja um starf
Hér geta hjúkrunarfræðingar með starfsleyfi og hjúkrunarnemar eftir þriðja ár skráð almenna starfsumsókn. Umsóknir hverfa eftir 6 mánuði frá umsókn.
Vinsamlegast skráið sérstakar óskir varðandi starf eða staðsetningu í reitinn annað sem þú vilt taka fram í umsókn. Sækja þarf um auglýst störf sérstaklega.
Sækja um starf
Hér geta læknar með starfsleyfi og læknanemar skráð almenna starfsumsókn. Umsóknir hverfa eftir 6 mánuði frá umsókn.
Vinsamlegast skráið sérstakar óskir varðandi starf eða staðsetningu í reitinn annað sem þú vilt taka fram í umsókn.
Sækja þarf um auglýst störf sérstaklega.
Nánari upplýsingar um starfið og umsóknina er að finna á vef Starfstorgs.
Hér geta sjúkraliðar með starfsleyfi skráð almenna starfsumsókn. Umsóknir hverfa eftir 6 mánuði frá umsókn.
Vinsamlegast skráið sérstakar óskir varðandi starf eða staðsetningu í reitinn annað sem þú vilt taka fram í umsókn.
Sækja þarf um auglýst störf sérstaklega.
Nánari upplýsingar um starfið og umsóknina er að finna á vef Starfstorgs.