Vinafélag hjúkrunardeildanna á Selfossi gefa höfðinglega gjöf
27. október 2023
Höfðingleg gjöf
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/47f4piHIsujUOPcIaQzjf6/e06390fae4ef02bb1d13034b4975b8c0/image001__1_.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Píanó](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/47f4piHIsujUOPcIaQzjf6/e06390fae4ef02bb1d13034b4975b8c0/image001__1_.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Hjúkrunarheimilið Móberg fagnaði 1 árs afmæli í vikunni. Á heimilinu eru starfrækar 5 hjúkrunardeildir Vörðufell, Búrfell, Miðfell, Mosfell og Bláfell.
Í tilefni afmælisins færði Vinafélag hjúkrunardeildanna á Selfossi, Móberg höfðinglega gjöf, glæsilegt píanó og píanóstól sem á eftir að gleðja heimilisfólk hjúkrunarheimilanna.
Esther Óskarsdóttir formaður Vinafélagsins afhenti gjöfina fyrir hönd félagsins og þökkum við þeim hjartanlega fyrir þessa stórkostlegu gjöf.
Píanóið verður staðsett á Búrfelli en er á hjólum og því einfalt að færa það á milli deilda.
Við hvetjum eindregið þá sem hafa áhuga á að leika á píanóið að hafa samband við deildarstjóra Móbergs í netfangið asta.tryggvadottir@hsu.is.