Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Vildi vera nálægt heimaslóðum og vonast eftir sumarstarfi

27. febrúar 2026

„Ástæðan fyrir að ég valdi HSU fyrir verknám er einföld, það er nálægt heimili mínu og ég vonaðist til að fá vinnu hér í sumar,” segir Glódís Ólöf Viktorsdóttir sem er á öðru ári í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri og er nú í fyrsta sinn í verknámi hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU).

Mæðgurnar Glódís Ólöf og Margrét Björk

Hún segir upplifunina af því að vera nemi á HSU afar jákvæða. „Það var mjög þægilegt að koma hingað. Margir þekktu mig áður en ég byrjaði – ég á frænkur sem vinna hér og nágrannar okkar starfa líka á stofnuninni.“

Verknámið stóð yfir í fjórar vikur. „Mér líst mjög vel á þetta – starfið er fjölbreytt og lærdómsríkt,“ en á þessari önn var hún staðsett á lyflækningadeild, en fram undan eru fjölbreytt verkefni á næstu árum: samfélagshjúkrun á heilsugæslu vorið 2027 og heimahjúkrun vorið 2028.

Það sem gerir verknámið sérstakt er að mamma hennar, Margrét Björk Ólafsdóttir, er hjúkrunarstjóri á heilsugæslunni á Selfossi. Þær mæðgur deila því ekki aðeins áhuga á hjúkrun heldur einnig vinnustað.

Nemamóttakan til fyrirmyndar

„Um leið og ég mætti var spurt hvað ég væri tilbúin að gera og ég var tekin með í allt. Ég hef fengið að fara á göngudeild, í speglun og rannsóknir og kynnst mörgum sérfræðingum og ólíkum sviðum hjúkrunar,“ segir Glódís um nemamóttökuna. Hún stefnir á að koma aftur í klínískt nám á heilsugæsluna á Selfossi á næsta ári.

Að sögn Margrétar Bjarkar eru um tuttugu nemar í klínísku námi hjá heilsugæslunni á ári hverju, þó eingöngu nemar á þriðja og fjórða ári. Á þriðja ári er áhersla lögð á samfélagshjúkrun þar sem nemar kynnast meðal annars ungbarnavernd, skólahjúkrun, aðgerðarstofu, móttökum á heilsugæslu, þjónustu við Litla-Hraun og verkefnum heimaspítala.

Á fjórða ári fara nemar svo í heimahjúkrun. Nemar koma víðs vegar af landinu – frá Reykjavík, Akranesi og Vestmannaeyjum – en samkvæmt Margréti er ekki í boði að taka heimahjúkrun innan heilsugæslna í Reykjavík með sama hætti og annars staðar. HSU er jafnframt eina heilbrigðisstofnun landsins sem rekur heimaspítala.

Báðar í námi

Það eru þó ekki aðeins nemarnir sem sitja á skólabekk. Margrét Björk er sjálf í námi sem tengist Háskóla Íslands í samstarfi við aðila í Finnlandi. Námið snýr að heildrænu öldrunarmati og öldrunarhjúkrun. Um er að ræða nýtt verkefni sem vakti mikinn áhuga Margrétar.

Aðspurðar hvort þær séu spenntar fyrir því að vinna saman á næstu árum brosa þær báðar. Glódís viðurkennir að hún sé kannski örlítið stressuð og vilji standa sig vel, á meðan Margrét Björk segist einfaldlega vera afar spennt.

„Já, þetta verður skemmtilegt,“ segja þær mæðgur að lokum.