Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Vignir nýr framkvæmdastjóri lækninga

1. september 2026

Guðmundur Vignir Sigurðsson tekur við starfi framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands frá og með 1. september. Samhliða því mun hann gegna starfi framkvæmdastjóra sjúkrasviðs.

Vignir Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga

Vignir lauk kandídatsprófi frá læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 2011 og stundaði svo sérnám í barnalækningum við Sahlgrenska Háskólasjúkrahúsið og lauk doktorsprófi frá Gautaborgarháskóla 2021. Vignir flutti aftur til Íslands 2021 í heimabæinn Hveragerði og hóf störf sem barnalæknir hjá HSU

Vignir hefur starfað sem yfirlæknir barnalækninga hjá HSU síðustu ár og leitt faglega uppbyggingu lífstílsmóttöku barna á heilsugæslum HSU. Þá hefur hann leitt rannsóknarverkefnið Kraftmiklir krakkar, sem er lífstílsverkefni fyrir börn og forráðamenn þeirra í heimahéraði á Suðurlandi.

„Í starfinu mínu síðustu fimm ár sem barnalæknir á Suðurlandi hef ég kynnst ótrúlega öflugum hópi heilbrigðisstarfsmanna. Það er því gríðarlega spennandi að fá að vinna með þeim áfram í nýju hlutverki sem framkvæmdastjóri lækninga og halda áfram að byggja upp gæða heilbrigðisþjónustu sem við getum öll verið stolt af."

Á meðan við óskum Vigni velfarnaðar í starfi færum við Sigurði Böðvarssyni, fráfarandi framkvæmdastjóra lækninga, okkar bestu þakkir fyrir afar gott og mikilvægt starf í þágu HSU. Framlag hans til uppbyggingar og þróunar læknisþjónustu hefur verið mikils virði og er okkur sérstakt ánægjuefni að kraftar hans, þekking og reynsla nýtist áfram innan HSU. Sigurður mun áfram gegna mikilvægu hlutverki í þróun heilbrigðisþjónustu stofnunarinnar sem yfirlæknir krabbameinslækninga.