Útskrift rannsóknarverkefnisins Kraftmiklir krakkar
20. maí 2026
Rannsóknarverkefnið Kraftmiklir krakkar var kynnt á Sjónaukanum 2026 við Háskólann á Akureyri fyrr í vikunni. Verkefnið, sem er nýsköpunarverkefni innan heilsugæslu Heilbrigðisstofnun Suðurlands, sýnir jákvæðan árangur af fjölskyldumiðaðri meðferð í heilsugæslu.

Myndir af teyminu í Uppsala með veggspjald um Kraftmikla krakka á ráðstefnu ECOG í nóvember 2025
Markmið teymisins er því að bregðast við vaxandi tíðni barna með offitu og bjóða upp á faglega meðferð og stuðning í heilsugæslu fyrir öll börn á Suðurlandi óháð búsetu.
Niðurstöður rannsóknar sýndi árangur með lækkun á staðalfráviki líkamsþyngdarstuðuls (LÞS SF) (e. BMI SD) barna í öllum árgöngum með marktækri lækkun fyrir börn í 4. og 7.bekk. Niðurstöður sýndu jafnframt árangur með jákvæðum breytingum á lífstílsþáttum, t.d. dró úr sykurneyslu, fleiri tóku lýsi og D-vítamín, fleiri foreldrar nýttu sér innihaldslýsingar til að velja sykurminni og sykurlitla matvöru og forðast gjörunnin matvæli. Vísbendingar eru um aukna hreyfingu barna og foreldra, slökkt var fyrr á skjátækjum og fleiri börn voru sátt við sig sjálf í lok meðferðar.
Tilgangurinn með rannsókninni var að kanna hvort sú faglega meðferð og stuðningur innan heilsugæslu sem lífstílsmeðferðin Kraftmiklir krakkar er beri árangur.
Þorbjörg Anna Steinarsdóttir vann meistaraverkefnið sem hluta af stærri rannsókn og eru ásamt Þorbjörgu þau Bjarnheiður Böðvarsdóttir hjúkrunarfræðingur, Eyrún Anna Stefánsdóttir sérnámslæknir í heimilislækningum, Íris Óskarsdóttir heimilislæknir og Vignir Sigurðsson barnalæknir í Kraftmiklir krakkar teyminu.
Það er von teymisins að hér sé komið módel að meðferðarúrræði fyrir börn með offitu sem sé raunhæft að veita í heilsugæslu um allt land. Með snemmtækri íhlutun um boð í meðferðarúrræði strax í kjölfar skimunar í heilsuvernd skólabarna er verið á veita þjónustu á réttum tíma. Með fjölskyldumiðaðri lífstílsmeðferð í heilsugæslu er verið að veita rétta þjónustu á réttum stað.
