Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tinmaður HSU 2024

27. maí 2024

Tinmaður HSU 2024 fór fram síðastliðinn laugardag.

Tinmaður HSU 2024 fór fram á laugardaginn 25 maí 2024. Um er að ræða þríþaut þar sem byrjað er á að synda 1.000 metra í Sundlauginni í Laugarskarði í Hveragerði, þá tók við 20 km á hjóli þar sem keppendur hjóluðu frá Hveragerði eftir sveita veginum að hringtorginu við Selfoss og til baka og luku svo keppni á 5 km hlaupi í fallegu umhverfi fyrir ofan Hveragerði.

Við þökkum Hveragerðisbæ og starfsfólki Laugarskarðs kærlega fyrir að opna sundlaugina fyrir okkur og alla aðstoðina.

Átta keppendur mættu til leiks í einstaklingskeppni og tóku fullan Tinmann með glæsilegum árangri. Þá hóf eitt lið keppni en gæsin í því liði var sótt af stórum vinkvennahópi eftir tæpa 500 metra þannig að liðið náði ekki að ljúka keppni. Sigurvegari Tinmanns HSU 2024 í karlaflokki er Helgi Hafsteinn Helgason og í kvennaflokki Sigrún Birna Hafsteinsdóttir og óskum við þeim hjartanlega til hamingju með árangurinn.