Teton gervigreindarlausn á Móbergi
18. maí 2026
Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur stigið mikilvægt skref í nýtingu nýrrar tækni í þjónustu og umönnun með innleiðingu á TETON á Móbergi.

Teton veitir rauntímaeftirlit með skjólstæðingum, fylgist með breytingum á virkni þeirra og greinir byltur og svefn.
Hjúkrunarheimilið Móberg er fyrsta hjúkrunarheimilið sem innleiðir þessa lausn og fer innleiðingin mjög vel af stað. TETON er gervigreindarlausn sem styður starfsfólk með snjallri og stöðugri yfirsýn yfir líðan og hreyfingu íbúa. Kerfið notar skynjara og gervigreind til að greina ákveðnar breytingar eða atvik, til dæmis fallhættu, hreyfimynstur eða breytingar á svefni, og getur þannig stutt starfsfólk við að bregðast fyrr við.
Rannsóknir sýna að með innleiðingu lausnarinnar hefur orðið að meðaltali 40% fækkun byltna og allt að 75% fækkun atvika, auk þess sem viðbragðstími getur styst um allt að 95%. Kerfið leggur ríka áherslu á öryggi og persónuvernd.
Ásta Tryggvadóttir, deildarstjóri á Móbergi segir um verkefnið:
Innleiðing á Teton-kerfinu hefur aukið öryggi heimilismanna til muna og höfum við strax orðið vör við jákvæðan árangur af notkun þess. Jafnframt hafa starfsmenn lýst því að þeir upplifi meiri ró í starfi og minni streitu tengda eftirliti með heimilismönnum. Að geta fengið viðvaranir þegar heimilismaður í byltuhættu vaknar og sest upp í rúmi leiðir til mun hraðari viðbragðstíma, sem dregur úr líkum á byltum og stuðlar þannig að auknu öryggi.
Innleiðingin gekk vonum framar hérna hjá okkur og voru starfsmenn fljótir að ná tökum á þessu kerfi
Innleiðing TETON endurspeglar vilja HSU til að nýta nýsköpun og tækni til að styrkja þjónustu, styðja starfsfólk og efla öryggi og vellíðan þeirra sem njóta þjónustunnar.
