Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Táknræn gjöf til krabbameinsdeildar HSU

3. september 2026

Krabbameinsfélag Árnessýslu færði krabbameinsdeild HSU fallega bjöllu sem mun fá sérstakan sess á göngudeild.

Guðbjörg Hjaltadóttir, sjúkraþjálfari á göngudeild, tekur við bjöllunni frá Erlu G. Sigurjónsdóttur, starfsmanni Krabbameinsfélags Árnessýslu

Við að hringja bjöllu í lok krabbameinsmeðferðar markar lok ákveðins kafla og upphaf þess næsta.

Bjallan er hugsuð fyrir einstaklinga sem lokið hafa krabbameinsmeðferð. Að síðustu meðferð lokinni gefst einstaklingum kostur á að hringja bjöllunni á göngudeildinni með starfsfólki sem hefur fylgt því í gegnum meðferð, oft í nokkra mánuði - stundum ár.

Þetta táknræna augnablik veitir oft gríðarlega andlegan styrk og gefur skjólstæðingum tækifæri að deila augnablikinu með fjölskyldu og starfsfólki sem fylgt hefur einstaklingnum í gegnum sína vegferð.

Krabbameinsfélag Árnessýslu vona að bjallan verði mörgum áminning um seiglu, hugrekki og von – og gefur þeim sem ljúka meðferð tækifæri til að fagna þessum mikilvægu tímamótum.