Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Sjö hjúkrunarfræðingar við HSU luku sérnámi í heilsugæsluhjúkrun

31. maí 2024

Nýverið lauk hópur hjúkrunarfræðinga á HSU sérnámi í heilsugæsluhjúkrun frá Háskólanum á Akureyri, en mikil ánægja hefur verið með þetta nám

Luku námi í sérnámi

Markmið námsins er að efla sjálfstæði hjúkrunarfræðinga í starfi og styrkja fyrir þverfaglega teymisvinnu ásamt því að þekkja skipulag almannavarna vegna náttúruhamfara og útbreiðslu smitsjúkdóma. Hlutverk heilsugæslunnar er skoðað út frá samfélagslegri ábyrgð hennar í þeim tilgangi að efla færni hjúkrunarfræðinga í að vinna að þróun og framgangi heilsugæslunnar innan samfélagsins.

Starf hjúkrunarfræðinga með sérnám verður sífellt mikilvægara í heilsuvernd. Má þar nefna mæðravernd, ung- og smábarnavernd, skólahjúkrun og heilsueflandi móttökur. Sérþekking hjúkrunarfræðinga nýtist vel til markvissra forvarna og heilsueflingar. Þeir stuðla að bættum gæðum hjúkrunar í samvinnu við stjórnendur og aðra starfsmenn í samræmi við sýn og stefnu hjúkrunar á stofnuninni.

Anna Guðríður Gunnarsdóttur er lærimeistari hópsins hjá HSU og hefur haldið vel utan nemana sína og á hrós skilið.