Sigurður Böðvarsson yfirlæknir krabbameinslækninga og göngudeildarþjónustu
4. september 2026
Framundan eru ný verkefni hjá Sigurði Böðvarssyni sem lætur af störfum sem framkvæmdastjóri lækninga á HSU og tekur við stöðu yfirlæknis krabbameinslækninga og göngudeildarþjónustu HSU.

Sigurður Böðvarsson, yfirlæknir krabbameinslækninga og göngudeildar
Sigurður hóf störf hjá HSU í desember 2018 sem yfirlæknir göngudeildar og sérfræðingur í krabbameinslækningum. Í kjölfarið tók hann við störfum framkvæmdastjóra lækninga og framkvæmdastjóra sjúkrasviðs. Þessum stjórnunarhlutverkum hefur hann gegnt undanfarin ár samhliða uppbyggingu og þróun krabbameinsþjónustu á Suðurlandi.
Frá því að Sigurður hóf störf hjá HSU hefur hann lagt ríka áherslu á uppbyggingu og eflingu krabbameinsþjónustu á Suðurlandi og átt mikilvægan þátt í þróun þjónustunnar innan stofnunarinnar.
Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU, þakkar Sigurði fyrir hönd framkvæmdastjórnar fyrir afar farsælt samstarf og verðmætt framlag til starfsemi stofnunarinnar.
„Við þökkum Sigurði kærlega fyrir farsælt samstarf í framkvæmdastjórn HSU. Framlag hans til uppbyggingar og þróunar læknisþjónustu hefur verið ómetanlegt og við metum mikils þá fagmennsku, reynslu og framtíðarsýn sem hann hefur lagt til starfa sinna. Það er okkur jafnframt sérstakt ánægjuefni að hann muni áfram leiða mikilvægt starf innan stofnunarinnar sem yfirlæknir krabbameinslækninga og göngudeildarþjónustu."
