Rúmlega 6,7 milljónir til styrktar heimahjúkrun HSU á Selfossi
17. júlí 2026
6.732.729 krónur söfnuðust í styrktarleik milli karlaliða Selfoss og Árborgar í 16-liða úrslitum í Gatorade-bikarnum í fótbolta í síðustu viku. Þeir Aron Fannar Birgisson, leikmaður Selfoss og Þorsteinn Daníel Þorsteinsson, leikmaður Árborgar, færðu heimahjúkrun HSU á Selfossi í morgun ágóðann.

Leikurinn var sérstakur fyrir þær sakir að Helga Guðmundsdóttir, móðir Arons Fannars, lést í byrjun síðustu viku. Að ósk Helgu rann allur ágóði leiksins til heimahjúkrunar HSU á Selfossi en það var þjónusta sem hún þurfti að nýta sér í sínum veikindum.
Við styrknum tóku þær Margrét Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarstjóri heilsugæslu HSU á Selfossi og Anna Margrét Magnúsdóttir aðstoðarhjúkrunarstjóri heilsugæslu HSU á Selfossi.
,,Heimahjúkrun á HSU Selfossi þakkar Helgu Guðmundsdóttur, fjölskyldu hennar og öllum þeim sem sem lögðu lið við styrkarleik Selfoss og Árborgar þann 8. júlí 2026. Það er mikill heiður að þau skulu ánafna heimahjúkrun ágóðanum og við erum orðlaus yfir þeirri upphæð sem safnaðist. Einnig öllum þeim stuðningi sem samfélagið sýndi. Þetta er mikil viðurkenning á okkar mikilvæga starfi og kemur þetta framlag til með að efla það enn frekar með tækja og búnaðarkaupum. Fyrir hönd heimahjúkrunar segjum við STÓRT TAKK.”
Þessi styrkur mun reynast starfseminni ómetanlegur að sögn Díönu Óskarsdóttur, forstjóra HSU.
,,Sá mikli stuðningur sem heimahjúkrun HSU hefur fengið er mikil viðurkenning á því góða starfi sem starfsfólk heimahjúkrunar sinnir á hverjum degi af alúð. Við erum afar þakklát fyrir styrkinn og stolt af starfseminni sem veitir faglega og persónulega heilbrigðisþjónustu á heimili fólks oft á viðkvæmum tímum í lífinu.
Hugur okkar er hjá fjölskyldu og nánustu aðstandendum Helgu og sendum við þeim okkar dýpstu samúðarkveðjur"
