Páskakveðja forstjóra
1. apríl 2026
Í þessum pósti lítum við yfir kraftmikla og árangursríka fyrstu mánuði ársins, þar sem skýr stefna, markviss framkvæmd og öflug samvinna starfsfólks hefur skilað sér í sýnilegum framförum í þjónustu við íbúa umdæmisins. Með nýrri stefnu HSU til ársins 2030 höfum við sett skýra sýn til framtíðar þar sem áhersla er lögð á framsækna þjónustu, eftirsóknarverðan vinnustað, gæða- og öryggismenningu og ábyrgan rekstur.

Framsækin þjónusta og aukið aðgengi
Við höfum lagt ríka áherslu á að þróa þjónustu sem mætir þörfum fólks á réttum tíma og á réttum stað. Heimaspítalinn er gott dæmi um slíka þróun þar sem þjónustan færist nær sjúklingunum. Samhliða þessu höfum við unnið markvisst að samræmingu þjónustu þvert á stofnunina.
Eftirsóknarverður vinnustaður og sterkur mannauður
Mannauður HSU er lykill að árangri okkar. Við höfum lagt aukna áherslu á að efla vinnustaðarmenningu þar sem samtal, traust og vellíðan eru í forgrunni.
Gæði og öryggismenning í forgrunni
Í byrjun árs var stofnað nýtt fagráð sem er liður í því að efla gæði og styrkja markvissa ákvörðunartöku til framtíðar. Á sama tíma höfum við lagt áherslu á öryggi í víðu samhengi, meðal annars með árangi í netöryggisátaki þar sem HSU hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur.
Ábyrgur rekstur og uppbygging til framtíðar
Rekstur heilbrigðisþjónustu er krefjandi og kallar á skýra forgangsröðun og ábyrga nýtingu fjármuna svo tryggja megi að þjónustan haldi áfram að þróast í takt við þarfir samfélagsins.
Í því samhengi er sérstaklega ánægjulegt að stór áfangi náðist með samþykkt á uppbyggingu og endurbótum á húsnæði HSU á Selfossi. Sú framkvæmd er lykilforsenda þess að við getum mætt vaxandi þörf fyrir heilbrigðisþjónustu á svæðinu og skapað betri aðstæður fyrir bæði starfsfólk og skjólstæðinga.
Þakklæti
Að lokum vil ég þakka starfsfólki fyrir fagmennsku, metnað og ómetanlegt framlag á hverjum degi. Einnig vil ég þakka samstarfsaðilum, styrktaraðilum og íbúum fyrir traustið og gott samstarf.
Til starfsfólks HSU og aðstandanda þeirra sem standa vaktina yfir páskana sendi ég innilegar kveðjur og þakklæti.
Gleðilega páska!
Díana Óskarsdóttir
