Nýsköpun og tækninýjungar innan veggja HSU
10. september 2026
Nýafstaðinn Nýsköpunardagur sýndi glögglega þann kraft og metnað sem býr innan Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Fjölbreytileiki verkefnanna, öflug þátttaka starfsfólks og mikill áhugi á deginum kristallaði markmið HSU um að vera í fararbroddi í þróun heilbrigðisþjónustu á komandi árum.
Góð mæting var á Hótel Selfoss á Nýsköpunardaginn
Gunnar Thorarensen, yfirlæknir Stafrænnar heilsu, opnaði dagskrána og kynnti í leiðinni starfsemi Stafræna heilsu, nýstofnaða miðstöð þróunar og nýsköpunar fyrir heilbrigðiskerfið. Hann byrjaði daginn á því að hrósa HSU fyrir nýsköpun í heilbrigðismálum, „það er eftir því tekið hvernig hlutirnir eru á Suðurlandi”, sagði yfirlæknirinn í ræðu sinni.
Dagskráin var fjölbreytt og vakti mikinn áhuga meðal gesta. Sérstaklega vöktu athygli erindi um notkun gervigreindar í heilbrigðisþjónustu, þar sem kynnt voru dæmi um hvernig tæknin er nýtt bæði í móttöku heilsugæslu, á hjúkrunarheimilum og við myndgreiningu á bráðamóttöku. Fram kom greinilega að nýsköpun á HSU hefur þegar sýnt merki um betri nýtingu á tíma starfsfólks og aukið öryggi sjúklinga.
Í ávarpi dagsins kom meðal annars fram að nýsköpun væri ekki markmið í sjálfu sér heldur er hún leið til að bæta þjónustu, styrkja faglegt starf og mæta breyttum þörfum samfélagsins. Starfsfólk HSU er lykillinn að þeirri þróun og hugmyndir þess eru grundvöllur framtíðaruppbyggingar stofnunarinnar. Fjölbreytileiki verkefnanna, öflug þátttaka starfsfólks og mikill áhugi gesta gefa skýr skilaboð um að HSU ætlar sér að vera áfram í fararbroddi í þróun heilbrigðisþjónustu á Íslandi á komandi árum.
Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU, sagði starfsfólk sitt mæta til vinnu með nýsköpun í blóðinu.
„Það er virkilega ánægjulegt að fá tækifæri til að deila þessari spennandi vegferð HSU með samfélaginu. Mig langar að þakka öllu starfsfólki okkar sem tóku þátt í dagskránni í dag og deildu með okkur þekkingu og reynslu. Það er einmitt með því að deila, læra hvert af öðru og þora að prófa nýjar leiðir sem við höldum áfram að þróast. Við höfum alla ástæðu til að vera stolt af því góða starfi sem á sér stað hér á hverjum degi.”
