Nýr tölvusneiðmyndaskanni tekinn í noktun á HSU
13. október 2025
Tækið, sem þegar er tekið í noktun, mun flýta fyrir daglegu starfi, einfalda rannsóknarferla og bæta upplifun sjúklinga
Guðrún Óskarsdóttir Andreasen og Guðlaug Arna Hannesdóttir geislafræðingar á röntgendeild við nýja tækið
Nýtt tölvusneiðmyndatæki (CT) hefur verið tekið í notkun á röntgendeild HSU. Nýja tækið er af gerðinni GE Revolution Ascend sem er háþróaður skanni sem einfaldar vinnuflæði, bætir myndgæði og dregur úr geislun.
Með tilkomu nýja skannans er hægt að ná betri myndgæðum með minni hávaða, hraðari og nákvæmari skönnun. Aðalbjörg Skarphéðinsdóttir, deildarstjóri á röntgendeild, segir að tækið reynist vel.
„Starfsfólk myndgreiningardeildar er mjög ánægt með tækið. Það er gott að læra á það, notendavænt og allar keyrslur eru að taka styttri tíma en á gamla tækinu, sem er mjög mikilvægt fyrir okkur, sérstaklega þar sem hingað koma inn alls konar slys og jafnvel hópslys, sem erfitt hefur verið að sinna á stuttum tíma þar sem gamla tækið þurfti tíma til að kæla sig niður eftir stórar rannsóknir.“
Tækið býður upp á sjálfvirkar stillingar og hraðari skönnun sem gerir starfsfólki kleift að afla hágæða mynda á stuttum tíma, jafnvel við krefjandi klínískar aðstæður. Tölvusneiðmyndartækið er þróað með því markmiði að bæta þægindi sjúklinga, en tækið er hljóðlátt og bæði hringurinn og borðið sem sjúklingar liggja á hafa stækkað töluvert. Sú hönnun tryggir aukin þægindi á meðan skönnun stendur.
Auk ofangreindra atriða býður tækið upp á betra aðgengi fyrir starfsfólk. Það notar 3D myndavél til að staðsetja skjólstæðinga á rannsóknarbekk sem styttir innstillingartíma fyrir myndgreiningarrannsókn. Tækið les skönnunarstillingar út frá upplýsingum um sjúkling sem tryggir samræmi auk þess sem lægri geislaskammtar bæta myndgæði fyrir hvern einstakling. Þessir eiginleikar gera framkvæmd rannsókna betri og veitir nákvæmnari vinnslu allra myndgreininga.
