Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Niðurstöður þjónustukönnunar fyrir febrúar

5. mars 2025

Áframhaldandi ánægja

Niðurstöður fyrir febrúar eru sambærilegar og fyrir mánuðinn á undan.

Þjónustuþegar eru almennt mjög ánægðir með þjónustu HSU og töldu 83% af þeim 1350 manns sem svöruðu þjónustuna vera góða.

Svarendur telja áfram að viðmót starfsfólks sé til fyrirmyndar eða 4,6 af 5 mögulegum.

Farið er yfir opnu svörin úr þjónustukönnuninni reglulega og allar ábendingar teknar til greina með það að markmiði að vinna úrbætur.

Nokkur hrós úr opnum svörum í febrúar:

  • Þjónustan var alveg til fyrirmyndar

  • Mjög fagleg þjónusta og ástundun heimilislæknis

  • Fékk mjög góða þjónustu, bæði hjá hjúkrunarfræðingi og lækni, áfram HSU :)

  • Þjónustan á síðustu árum hefur stóraukist og nú get ég fengið alla mína aðstoð á HSU