Laus staða framkvæmdastjóra hjúkrunar
22. september 2026
Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra hjúkrunar í einu stærsta og fjölbreyttasta heilbrigðisumdæmi landsins.

Leitað er að öflugum, framsýnum og metnaðarfullum stjórnanda með sterka faglega sýn, sem vill leiða heilbrigðisþjónustu HSU áfram í takt við síbreytilegt heilbrigðisumhverfi og auknar kröfur um gæði, öryggi og nýsköpun. Framkvæmdastjóri hjúkrunar er hluti af framkvæmdastjórn HSU, heyrir beint undir forstjóra og hefur áhrif á faglega stefnu stofnunarinnar. Starfshlutfall er 100%. Ráðið í starfið frá 1. nóvember nk. eða samkvæmt samkomulagi.
Starfið felur í sér faglega forystu, stefnumótun og þróun hjúkrunarþjónustu HSU. Framkvæmdastjóri hjúkrunar ber faglega ábyrgð á hjúkrunarþjónustu stofnunarinnar og gegnir lykilhlutverki í stefnumótun, rekstri, þjónustuþróun og innleiðingu breytinga þvert á stofnunina.
