Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Kvenfélag Grímsneshrepps færir Móbergi lífsmarkamæli að gjöf

17. febrúar 2026

Kvenfélag Grímsneshrepps afhenti hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi nýverið lífsmarkamæli að gjöf til minningar um heiðursfélaga sinn, Þóru Magnúsdóttir, sem dvaldi á Móbergi um tíma.

Ásta Tryggvadóttir og Dagný Ómarsdóttir fyrir hönd Móbergs og Sandra Gunnarsdóttir og Guðríður Guðmundsdóttir fulltrúar Kvenfélags Grímsneshrepps við lífsmarkamælinn

Lífsmarkamælirinn mælir blóðþrýsting, púls, súrefnismettun og líkamshita og mun því nýtast afar vel í daglegu starfi heimilisins. Lífsmörk eru mæld að minnsta kosti mánaðarlega hjá hverjum heimilismanni og oftar hjá þeim sem þurfa á því að halda.

Með tilkomu nýja tækisins verða mælingar áreiðanlegri og auðveldara verður að fylgjast með heilsufari og meta ástand skjólstæðinga á markvissan hátt, segir Ásta Tryggvadóttir deildarstjóri á Móbergi.

Gjafinn er dýrmætt framlag til starfseminnar og ber vitni um hlýhug og stuðning kvenfélagsins við heimilið og íbúa þess. Starfsfólk á Móbergi færir Kvenfélagi Grímsneshrepps kærar þakkir fyrir gjöfina og hlýjan hug í minningu Þóru Magnúsdóttur.