Inflúensubólusetning hefst 20. október fyrir forgangshópa
16. október 2025
Árleg bólusetning gegn inflúensu hefst á heilsugæslum HSU frá og með 20. október fyrir forgangshópa.

Einstaklingar eru hvattir til þess að hringja á sína heilsugæslu og bóka tíma. Þeir sem eru ekki forgangshópum verður boðið síðar og það auglýst
Einnig geta þeir sem eiga heilsugæslu á Selfossi bókað tíma á mínum síðum á heilsuveru.
Forgangshópar eru:
Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
Öll börn fædd 1.1.2021 - 30.6.2025, sem hafa náð 6 mánaða aldri þegar bólusett er.
Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Barnshafandi konur.
Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu eins og það var skilgreint í frétt frá Embætti Landlæknis frá árinu 2023
Ekki er boðið upp á Covid bólusetningu samfara bólsetningu gegn inflúensu samkvæmt tilmælum sóttvarnalæknis. Nánar má lesa um stöðu bólusetninga um covid á vef embættis landlæknis.
