Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

HSU og Fjarlækningar hefja samstarf um nýja stafræna læknisþjónustu

13. ágúst 2026

Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Fjarlækningar hefja samstarf um nýja leið til að auka aðgengi að læknisþjónustu. Samstarfið er tilraunaverkefni sem miðar að því að einfalda afgreiðslu algengra og afmarkaðra erinda, stytta biðtíma og skapa meira svigrúm fyrir heilsugæsluna til að sinna flóknari verkefnum.

Davíð Egilsson yfirlæknir í Vestmannaeyjum, Mads Aanesen stofnandi Fjarlækninga, Iðunn Dísa hjúkrunarstjóri í eyjum, Díana Óskarsdótti forstjóri HSU og Victor Guðmundsson stofnandi Fjarlækninga

Skjólstæðingar HSU geta sent inn erindi í gegnum heimasíðu HSU sem beinir þeim í örugga sjúklingagátt Fjarlækninga. Þar geta skjólstæðingar fengið svar frá lækni innan tveggja klukkustunda á opnunartíma, alla daga frá kl. 10:00 til 22:00. Til að byrja með stendur þjónustan eingöngu skjólstæðingum HSU í Vestmannaeyjum til boða. Þess má geta að þjónustan er ætluð einstaklingum 18 ára og eldri.

Í fyrstu verður hægt að leysa úr ýmsum algengum erindum sem krefjast ekki komu á heilsugæslustöð. Spurningalistar þjónustunnar leiða sjúkling í gegnum markvissar spurningar líkt og í hefðbundnu læknisviðtali. Ef svör benda til alvarlegra einkenna er viðkomandi strax vísað í viðeigandi úrræði innan heilbrigðiskerfisins.

Díana Óskarsdóttir forstjóri HSU segir verkefnið mikilvægt skref í áframhaldandi þróun og eflingu heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi, sem er víðfeðmasta umdæmi heilbrigðisstofnanna á Íslandi.

„Eitt af okkar lykilhlutverkum er að tryggja sem jafnast aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu. Fyrir íbúa á Suðurlandi skiptir miklu máli að nýta þær leiðir sem geta fært þjónustuna nær fólki, dregið úr töfum og aukið sveigjanleika í þjónustunni.

Það er því sérstaklega ánægjulegt að hefja þetta verkefni í Vestmannaeyjum. Við bindum vonir við að það reynist verðmætt fyrir skjólstæðinga okkar þar og veiti okkur mikilvæga innsýn í hvernig við getum áfram þróað og styrkt þjónustu HSU til framtíðar. HSU hefur ávallt lagt áherslu á að skapa starfsfólki svigrúm til nýsköpunar og þróunar og þetta samstarf við Fjarlækningar er gott dæmi um slíka nálgun,“ segir Díana.

Victor Guðmundsson, læknir og framkvæmdastjóri Fjarlækninga hefur undanfarin ár þróað fjarheilbrigðisþjónustu og stafræna lausn fyrir fjarlækningar á Íslandi ásamt teymi sínu þeim Guðbjarti Ólafssyni sérfræðingi í heimilislækningum og Mads Aanesen lækni.

„Markmið okkar er ekki að koma í stað hefðbundinnar heilsugæslu heldur að nýta tæknina þar sem hún hentar best. Þjónustan er ætluð afmörkuðum erindum og hentar því ekki öllum vandamálum, en með því að leysa einföld og afmörkuð erindi á öruggan hátt getum við bætt aðgengi að læknisþjónustu og um leið skapað meira svigrúm fyrir heilsugæsluna til að sinna þeim sem þurfa á umfangsmeiri þjónustu að halda,“ segir Guðbjartur Ólafsson, yfirlæknir Fjarlækninga.

Victor Guðmundsson segir að hugmyndin hafi kviknað þegar hann starfaði á heilsugæslu.

„Við sáum aftur og aftur sömu tegund af erindum sem í mörgum tilfellum var hægt að leysa án þess að sjúklingur þyrfti að mæta í skoðun. Þá kviknaði hugmyndin að öruggri stafrænni læknisþjónustu sem gæti aukið aðgengi um land allt, sparað tíma og einfaldað þjónustuna fyrir bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Við skoðuðum sambærilegar lausnir erlendis og þróuðum þjónustuna út frá þeirri reynslu með íslenskar þarfir að leiðarljósi.

Það er sérstaklega ánægjulegt að hefja verkefnið hér í Vestmannaeyjum. Ég hef búið hér síðastliðið ár og séð af eigin raun hversu mikilvægt er að bæta aðgengi að heilbrigðisþjónustu, sérstaklega utan höfuðborgarsvæðisins. Við trúum því að stafræn læknisþjónusta geti orðið mikilvæg viðbót við hefðbundna heilsugæslu og styrkt heilbrigðiskerfið, ekki síst á landsbyggðinni. Við erum því mjög spennt fyrir samstarfinu við HSU og bjartsýn á að þetta verði fyrsta skrefið í að bæta aðgengi að læknisþjónustu um allt land.“