Fara beint í efnið

HSU fær viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

12. október 2022

Ráðstefna Jafnvægisvogarinnar var haldin í dag 12. október við hátíðlega athöfn með yfirskriftinni Jafnrétti er ákvörðun.

vidurkenning merki 2022 gull-002

Ráðstefna Jafnvægisvogarinnar var haldin í dag 12. október við hátíðlega athöfn með yfirskriftinni Jafnrétti er ákvörðun.

59 fyrirtæki, 6 sveitarfélög og 11 opinberir aðilar hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar, hreyfiaflsverkefnis FKA. Á árinu 2022 bættust við 57 nýir þátttakendur í hóp þeirra aðila sem taka þátt í Jafnvægisvoginni.

Frábær árangur á meðal þátttakenda í Jafnvægisvog FKA

Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), hélt í dag stafrænu ráðstefnuna Jafnrétti er ákvörðun, sem streymt var í beinni útsendingu á vefsíðu RÚV. Þar kynnti Eliza Reid viðurkenningarhafa Jafnvægisvogarinnar, en það eru þeir þátttakendur sem hafa náð að jafna kynjahlutfall í efsta lagi stjórnunar (framkvæmdastjórn). Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar árið 2021 voru viðurkenningarhafar 53 talsins en í ár voru þeir samtals 76.

Að hreyfiaflsverkefninu standa auk FKA, forsætisráðuneytið, Sjóvá, Deloitte, Pipar\TBWA og Ríkisútvarpið.

Fimmtíu og níu fyrirtæki, sex sveitarfélög og ellefu opinberir aðilar hljóta viðurkenningu

Jafnvægisvogin veitti viðurkenningar til fimmtíu og níu fyrirtækja, sex sveitarfélaga og ellefu opinberra aðila úr hópi þeirra 209 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu. Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar hafa náð góðum árangri á þessu sviði og fjölgaði þeim þátttakendum sem hafa náð markmiðunum um 23 á milli ára.

„Það hefur verið gaman að fylgjast með Jafnvægisvoginni stækka undanfarin ár og jafnréttismál verða að mikilvægu forgangsmáli hjá okkar þátttakendum. Þátttakendur taka stoltir við viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar og hafa verið duglegir að vekja athygli á jafnréttismálum innan sinna vinnustaða með ýmsum hætti. Því miður eru konur eingöngu 24% framkvæmdastjóra fyrirtækja á Íslandi og hefur hlutfallið eingöngu farið upp um 3% á síðustu tíu árum. Ég er þó bjartsýn á að hlutfallið muni fara hraðar upp á næstu árum með aukinni vitundarvakningu meðal þeirra sem taka ákvörðun um ráðningar“ segir Thelma Kristín Kvaran, verkefnastjóri Jafnvægisvogarinnar.

 

Jafnrétti hefur bein áhrif á umhverfið

Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar 2020 var kynntur nýr Jafnréttislundur FKA, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur útvegaði Jafnvægisvoginni. Lundurinn er staðsettur við aðalinnganginn í Heiðmörk, Vífilsstaðamegin, og er það fyrsta sem fólk sér þegar það gengur inn í Heiðmörk. Í ár voru gróðursett 76 tré, eitt fyrir hvern viðurkenningarhafa árið 2022. Valdar voru margar tegundir af trjám sem tákn um þann fjölbreytileika sem Jafnvægisvogin er að stuðla að. Alls er búið að setja niður 173 tré í Jafnréttislundi á síðustu 3 árum. Það er markmið Jafnvægisvogarinnar að endurtaka þetta árlega og væri ánægjulegt að sjá hlíðina fyllast á næstu árum, með auknu jafnrétti.

 

Aðgengileg og skýr framsetning upplýsinga

Jafnvægisvogin heldur úti mælaborði sem er ætlað að halda utan um tölfræðilegar upplýsingar um jafnrétti. Þannig er hægt að tryggja aðhald og góða frammistöðu. Í mælaborði Jafnvægisvogarinnar koma fram allar helstu opinberar upplýsingar um stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi og innan hins opinbera og þær gerðar aðgengilegar á einfaldan og skýran hátt.

 

Bættist í hóp fyrirtækja og sveitarfélag sem sjá sér hag í að vinna með Jafnvægisvoginni

Mikill vilji hefur verið hjá fyrirtækjum, sveitarfélögum og opinberum aðilum að vinna að jafnréttismálum þegar kemur að æðstu stjórnendum. Á árinu undirrituðu alls fjörutíu og sjö fyrirtæki, tvö sveitarfélög og átta opinberir aðilar viljayfirlýsingu um að vinna að markmiðum Jafnvægisvogarinnar og bættust þar með í hóp þeirra sem undirrituðu á síðustu árum. Þátttakendur eru orðnir 209 þátttakendur talsins. Fjölbreyttur mannauður hefur jákvæð áhrif á afkomu fyrirtækja sem og starfsánægju og frammistöðu í starfi, stuðlar að betri ákvarðanatöku og aukinni verðmætasköpun þar sem nýsköpun og vöxtur verður frekar í hópi fólks með ólíkar skoðanir og bakgrunn. Þátttakendur hafa þannig sýnt í verki að þau vilja virkja allan mannauðinn.

 

Eftirfarandi fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í ár:

  1. 1912

  2. A4

  3. AGR Dynamics

  4. Akraneskaupstaður

  5. Atmonia

  6. AwareGO

  7. BL

  8. Blue Lagoon

  9. BYKO

  10. Coca-Cola European Partners

  11. Creditinfo

  12. Dagar

  13. Deloitte

  14. dk hugbúnaður

  15. Einingaverksmiðjan

  16. Elkem Ísland

  17. ELKO

  18. Ernst & Young

  19. Fangelsismálastofnun

  20. Félagsbústaðir

  21. Fjallabyggð

  22. Fly Play

  23. Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir

  24. GG verk ehf

  25. Guðmundur Arason

  26. Hafnarfjarðarbær

  27. Hagstofa Íslands

  28. Háskóli Íslands

  29. Heilbrigðisstofnun Austurlands

  30. Heilbrigðisstofnun Suðurlands

  31. Hirzlan

  32. HS Orka

  33. indó sparisjóður

  34. Isavia

  35. Íslandsbanki

  36. Íslandshótel

  37. Íslandspóstur

  38. Krónan

  39. Landgræðslan

  40. Landsvirkjun

 

  1. Lyf og heilsa

  2. Lyfja

  3. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

  4. Mannvit

  5. Miklatorg

  6. Múlaþing

  7. Norðurál Grundartanga

  8. Norðurorka

  9. Nova

  10. Olís

  11. Orka náttúrunnar

  12. Orkan

  13. Orkusalan

  14. Orkuveita Reykjavíkur

  15. Ósar – lífæð heilbrigðis

  16. Pipar\TBWA

  17. Rafal

  18. Rangárþing ytra

  19. Reykjanesbær

  20. Rio Tinto á Íslandi

  21. SaltPay

  22. Samkaup

  23. Sjóvá

  24. Skatturinn

  25. Sólar

  26. Taktikal

  27. Tryggingastofnun

  28. Tryggja

  29. Vátryggingafélag Íslands

  30. Vegagerðin

  31. Veitur

  32. Veritas

  33. Vörður tryggingar

  34. Vinnueftirlitið

  35. Wise

  36. Ölfusborg