Heimasíða Kraftmikla krakka farin í loftið
22. maí 2026
Rannsóknarhópurinn sem stendur að baki Kraftmiklir Krakkar móttökunni á Suðurlandi hafa opnað heimasíðu.

Inni á https://kraftmiklirkrakkar.is er hægt að finna fróðleik fyrir foreldra og börn varðandi heilbrigðan lífstíl, aukinheldur eru þar upplýsingar fyrir heilbrigðisstarfsfólk í heilsugæslu sem hafa áhuga á að setja upp Kraftmiklir krakkar lífstílsmóttöku fyrir börn með offitu á sinni stöð.
Verkefnið hefur hlotið verðskulda athygli hérlendis og hlotið fjölda tilnefninga fyrir nýsköpun í heilbrigðisþjónustu en bara í þessum mánuði var verkefnið tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera árið 2026.
Kraftmiklir krakkar er nýsköpunarverkefni þverfaglegs heilbrigðisstarfsmanna á heilsugæslu HSU og lesa má nánar um upphaf verkefnisins í frétt frá síðasta ári.
