Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Heilbrigðisstofnun Suðurlands 10 ára í október

31. október 2024

Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, skrifar

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) var stofnuð hinn 1. október 2014 og hefur því verið starfrækt í 10 ár. Sameiningin fyrir 10 árum tók til Heilbrigðisstofnana Suðurlands, Vestmannaeyja og Suðausturlands og sinnir HSU því víðfeðmasta heilbrigðisumdæmi landsins. Markmiðið með sameiningunni var að styrkja heilbrigðisþjónustu á svæðinu og samnýta fagþekkingu og hæfni starfsfólks með það fyrir augum að veita betri og hagkvæmari þjónustu. Ég er vitaskuld ekki óvilhöll, en ætla engu að síður að leyfa mér að fullyrða að þessi fögru fyrirheit hafa gengið eftir.

Díana Óskarsdóttir

Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

ÓTRÚLEGUR MANNAUÐUR
Ég hef notið þess heiðurs að leiða þennan stórkostlega vinnustað undanfarin fimm ár og tók við stýrinu hjá HSU á þröskuldi heimsfaraldurs Covid-19. Það er ekki að ástæðulausu sem að HSU eru eyrnamerktir liðlega 12 milljarðar á fjárlögum. Viðfangsefnin eru ærin og umfangið auðvitað stundum yfirþyrmandi, en ég er svo heppin að hafa mér til liðsinnis um 850 starfsmenn í um 550 stöðugildum. Þetta er stór og öflugur hópur; ótrúlegur mannauður. Við leggjum ríka áherslu í störfum okkar á þverfaglega teymisvinnu til að viðhalda starfsánægju og tryggja bæði gæði þjónustu og ánægju skjólstæðinga. Kannanir meðal bæði starfsfólks og skjólstæðinga sýna ítrekað að þessi takmörk eru að nást með miklum sóma.

VELFERÐ SKJÓLSTÆÐINGA LEIÐARLJÓSIÐ
Heilbrigðisstofnun Suðurlands veitir öfluga heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu. HSU starfrækir 9 heilsugæslustöðvar á 10 starfsstöðvum, 2 sjúkrahús og 4 hjúkrunarheimili, auk þess sem við sinnum bráðaþjónustu og sjúkraflutningum um allt umdæmið allan sólarhringinn eftir þörf. Allt frá Þorlákshöfn til Hafnar í Hornafirði með viðkomu í Hveragerði, á Selfossi, í Uppsveitum Suðurlands, í Rangárþingi, Vík, á Kirkjubæjarklaustri og í Vestmannaeyjum. Gildin okkar eru fagmennska, samvinna og virðing. Velferð skjólstæðinga er okkar leiðarljós.

ÁSKORANIR Í VAXANDI FJÖLMENNI
Íbúafjöldinn á Suðurlandi er í dag um 35 þúsund og samfélagið fer ört vaxandi. Hér eru einnig nokkrir fjölsóttustu ferðamannastaðir landsins og um 8 þúsund frístundahús. Þetta hefur í för með sér mikla umferð. Í þessum tölulegu staðreyndum felast að sjálfsögðu margvíslegar áskoranir, en stefna okkar hjá HSU er að tryggja öllum íbúum, skjólstæðingum og þjónustuþegum hnökralausan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustuna sem völ er á.

HEIMASPÍTALI HSU: FRAMSÆKIN NÝJUNG
Í takti við allt ofangreint, þá var virkilega gleðilegt að undirrita um miðjan afmælismánuðinn í október samkomulag við heilbrigðisráðuneytið um rekstur heimaspítala, sem er framsækin nýjung í rekstri HSU. Við hófum rekstur heimaspítalans í ársbyrjun 2024 í tilraunaskyni og höfum unnið hörðum höndum að þróun þjónustunnar síðan þá. Heimaspítali HSU hefur í för með sér aukna heilbrigðisþjónustu, þar meðtalda læknisþjónustu, við fólk sem býr heima og þarfnast meiri stuðnings en almennrar félagsþjónustu og heimahjúkrunar.

STÓRBÆTT ÞJÓNUSTA Í HEIMAHÚSUM
Heimaspítalinn er einkum hugsaður fyrir tvo meginhópa: Annars vegar hruma og fjölveika aldraða og hins vegar fólk á öllum aldri sem er í líknandi meðferð. Þjónustan miðar að því að bjóða persónumiðaða umönnun fyrir fólk sem þarfnast flókinna samsettra lausna, bæði á sviði heilbrigðis- og velferðarþjónustu. Heimaspítalinn styrkir þannig til muna þá þjónustu sem almennt er veitt í heimahúsum. Markmiðið er að draga úr þörf aldraðra fyrir að leita á bráðamóttöku og fækka innlagnardögum á spítala.

GENGIÐ TIL GÓÐS
Það er von mín og trú að skjólstæðingar HSU og íbúar á okkar þjónustusvæði upplifi það að stofnunin hafi gengið til góðs undanfarinn áratug. Starfsfólki HSU óska ég farsældar og hlakka til okkar vegferðar næstu árin. Ég færi ykkur kærar þakkir fyrir stórkostlega frammistöðu á síðustu árum. Það er meira en að segja það að fá að leiða slíkan vinnustað. Til hamingju með 10 ára afmælið, starfsfólk, skjólstæðingar, vinir og velunnarar HSU!