Fara beint í efnið

Grímuskylda á HSU á bráðamóttöku, lyflækninga- og göngudeildum

17. júlí 2024

Skjólstæðingar með öndunarfæraeinkenni skulu bera grímu á öllum starfsstöðvum HSU

Grímuskylda HSU

Frá og með 17. júlí verður grímuskylda í öllum sjúklingasamskiptum á bráðamóttöku, lyflækninga- og göngudeild HSU. Öllum skjólstæðingum, heimsóknargestum og öðrum utanaðkomandi aðilum skylt að bera grímu á deildunum.

Skjólstæðingar með öndunarfæraeinkenni skulu undantekingarlaust bera grímu á öllum starfsstöðvum HSU.

Þá minnum við á að mikilvægi handhreinsunar en það er einfaldasta og áhrifaríkasta leiðin til að rjúfa smitleiðir.

Þessar ráðstafanir verða endurskoðaðar í lok mánaðar.