Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Gjafir til HSU

17. apríl 2024

Velunnarar gefa til HSU - 40 ára afmæli hjúkrunardeildanna Foss- og Ljósheima

Nýverið gaf Kvenfélag Grímsneshrepps stofnuninni á Selfossi tvær rafstillanlegar göngugrindur sem nýttar verða á deildunum þar þeirra er þörf hverju sinni. Heildarandvirði göngugrindanna er 759.810 krónur. Mikil vöntun hefur verið á svona búnaði og því kemur þetta sér einstaklega vel.

Kvenfélagskonurnar í Grímsnesi létu ekki þar við sitja heldur gáfu 100.000 krónur til Foss- og Ljósheima í tilefni 40 ára afmælis deildanna sem haldið var upp á fyrir stuttu.

Í tilefni 40 ára afmælis hjúkrunardeildanna fengu deildirnar fleiri höfðinglegar gjafir. Oddfellowstúkan Þóra gaf 1.000.000 króna sem nýttar verða í kaup á lyfjadælumog Lions í Skeiða- og Gnúpverjahreppi gaf baðstól að verðmæti 1.100.000 krónur.

Það er ómetanlegt að finna þann hlýhug sem svona gjöfum fylgir og aldrei hægt að fullþakka. HSU þakkar innilega fyrir gjafirnar og óskar þessum félagasamtökum velfarnaðar um ókomna tíð.

Eins og fyrr segir þá var nýverið haldið upp á 40 ára afmæli hjúkrunardeildana Foss- og Ljósheima og með fylgja nokkrar myndir í tilefni af því.

Rafstillanlegar göngugrindur
Fulltrúar Lions í Skeiða- og Gnúpverjahr. ásamt deildarstjóranum Unni Eyjólfsdóttur.
Gestir í afmælisveislu Foss- og Ljósheima
Karlakór Selfoss syngur í afmæli Foss- og Ljósheima
Díana Óskarsdóttir forstjóri HSU, Unnur Eyjólfsdóttir deildarstjóri Foss- og Ljósheima, Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir framkv.stjóri hjúkrunar og Dagný Ómarsdóttir aðstoðardeildarstjóri.
Gestir í afmælisveislu Foss- og Ljósheima
Helga S. Sveinsdóttir og Unnur Eyjólfsd.