Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Gæðastjórnun snýst um menningu

19. ágúst 2026

Verkefna- og gæðastjóri leiðir fjölbreytt verkefni gæðateymisins sem er í fararbroddi umbótastarfs stofnunarinnar sem gerir markvissa greiningu á ferlum í nánu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk. Starfið felur í sér stöðuga endurskoðun á verklagi með það að markmiði að einfalda vinnuferla, draga úr óþarfa álagi og nýta tíma og mannauð betur.

Verkefna- og gæðastjóri leiðir fjölbreytt verkefni gæðateymisins sem er í fararbroddi umbótastarfs stofnunarinnar sem gerir markvissa greiningu á ferlum í nánu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk. Starfið felur í sér stöðuga endurskoðun á verklagi með það að markmiði að einfalda vinnuferla, draga úr óþarfa álagi og nýta tíma og mannauð betur.

Starfið er margbreytilegt þar sem þjónusta HSU er svo víðtæk. Gæðastjórnun snýst ekki eingöngu um reglur og eftirlit heldur um að skapa menningu þar sem starfsfólk tekur virkan þátt í umbótum og fær tækifæri til að leggja sitt af mörkum.

Það getur verið áskorun að breyta verklagi sem hefur verið við lýði í langan tíma. Umbóta- og þróunarstarf HSU hefur eflst mikið á síðustu árum með öflugri stoðþjónustu og góðu samstarfi þvert á stofnunina um allt umdæmið. Inga bætir við;

"Árangur næst þó aðeins þegar allir vinna saman að sameiginlegu markmiði og við finnum sterkan vilja hjá starfsfólki til að gera gott starf enn betra."

Inga segir fátt jafnast á við það þegar stór verkefni ganga upp og ávinningurinn er augljós.

"Við höfum til dæmis staðið fyrir vinnustofum með nokkrum einingum undanfarna mánuði. Úr þeirri vinnu hafa komið rúmlega 200 umbótatillögur frá starfsfólkinu sjálfu sem við höfum þegar hrint í framkvæmd eða afgreitt. Markmiðið með þeim er að auka starfsánægju, einfalda vinnuferla og gera þjónustuna enn skilvirkari. "

Sem umbótaþenkjandi vinnustaður leggur HSU mikla áherslu á atvikaskráningar og lítur á þær sem tækifæri til umbóta. Inga segir að mikilvægt er að öll atvik séu skráð, óháð því hver olli þeim eða hversu alvarleg þau kunna að vera. Með skráningu er hægt að læra af atvikum og koma í veg fyrir að sambærileg atvik endurtaki sig.

"Umbótastarfi lýkur aldrei og það er einmitt það sem gerir starfið svo skemmtilegt. Með stöðugum umbótum getum við aukið skilvirkni, dregið úr óþarfa álagi og stuðlað að meiri starfsánægju. Þannig skapast meira svigrúm fyrir starfsfólk til að sinna því sem skiptir mestu máli, að veita örugga og framúrskarandi heilbrigðisþjónustu."