Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Fyrsti fundur fagráðs HSU

18. febrúar 2026

Fyrsti fundur nýskipað fagráðs fór fram með framkvæmdastjórn HSU miðvikudaginn 18. febrúar 2026.

Fagráðið vinnur til þriggja ára og við myndun þess var öllu starfsfólki gefinn kostur á að gefa sig fram eða senda inn tilefningu á öðru starfsfólki.

Fagráðið mun styrkja faglegt samtal innan HSU, styðja við markvissa ákvörðunartöku sem mun efla gæði þjónustu HSU til framtíðar. Á fundinum kynnti forstjóri starfsáætlun stofnunarinnar, fór yfir stöðuna á helstu málum og að lokum voru lögð drög að því hvernig fagráðið og framkvæmdastjórn muni vinna saman á komandi misserum.

Í tilefni af fyrsta fundi var tekin mynd af ráðinu. Á myndina vantar Andra Heide, yfirlækni bráðamóttökunnar. Á myndinni er talið frá vinstri: Björn Jakob Magnússon heimilislæknir, Þórhildur Guðbjörg Hjaltadóttir flæðisstjóri, Anna Margrét Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur, Lóa Björk Óskarsdóttir deildarstjóri rannsókn, Aníta Ársælsdóttir hjúkrunarfræðingur Vestmannaeyjum og Sverrir Örn Jónsson sjúkraflutningar.