Flugslysaæfing í Vestmannaeyjum
8. apríl 2025
Fréttir

Flugslysaæfing var haldin á Vestmannaeyjaflugvelli síðastliðin fimmtudag. Þar átti flugvél með 22 um borð að hafa hlekst á í lendingu með þeim afleiðingum að margir slösuðust og eldar kviknuðu víða.
Mjög góð þátttaka var á æfingunni og á fræðslu dagana á undan. Alls tóku þátt 50 starfsmenn HSU, þar má telja sjúkraflutningamenn, hjúkrunarfræðingar, læknar, sjúkraliðar, heilbrigðisgagnafræðingar, móttökuritar, starfsfólk úr rannsóknardeild og myndgreiningu svo eitthvað sé nefnt.
Æfingin var keyrð alveg frá slysavettvangi inn á söfnunarsvæði slasaðra sem var í flugstöðinni og vel mannað af heilbrigðisstarfsfólki, þaðan voru sjúklingarnir svo annað hvort fluttir á HSU í eyjum þar sem þeim var sinnt áfram með til dæmis röntgenmynd, spelkun og fleira, eða þeir mest slösuðu fluttir í þyrlu eða flugvél sem þó fluttu sjúklingana ekki í alvöru lengra.
Æfingin þótti heppnast mjög vel og var frábært að sjá svona góða þátttöku heilbrigðisstarfsfólks, en mjög mörg ár eru síðan æfing var keyrð síðast alla leið inn á heilsugæslu.
Samhliða flugslysaæfingunni var keyrð ný hópslysaáætlun HSU í eyjum og heppnaðist vel. Eðlilega koma upp einhverjir hnökrar en til þess eru einmitt svona æfingar, til að læra af þeim, bæta verklag svo hægt sé að tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks.
Myndir af æfingunni, taka skal fram að ekki var um raunverulega sjúklinga að ræða.



























