Fara beint í efnið

Félagsráðgjafi við HSU í Vestmannaeyjum

13. mars 2023

Ráðið í nýtt starf við HSU Vestmannaeyjum

Sólrún Erla Gunnarsdóttir (1)

Sólrún Erla Gunnarsdóttir félagsráðgjafi hefur verið ráðin í 50% starf félagsráðagjafa við HSU í Vestmannaeyjum.

Sólrún Erla starfaði síðast hjá Vestmannaeyjabæ sem deildarstjóri öldrunarmála og þar áður á fjölskyldu og fræðslusviði Vestmannaeyjabæjar. Hún lauk námi í félagsráðgjöf frá HÍ og stundar núna diplómanám á meistarastigi í öldurnar þjónustu við sama skóla og að auki hefur hún lokið ýmsum námskeiðum sem tengist sviðinu.  Einnig á hún og ritstýrir vefsíðunni www.aldur.is.

Við bjóðum Sólrúnu Erlu hjartanlega velkomna til starfa.