Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Ásta Tryggvadóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar

1. nóvember 2026

Ásta Tryggvadóttir tók við starfi framkvæmdastjóra hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands frá og með 1. nóvember.

Ásta Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar

Ásta er menntaður hjúkrunarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og lauk MBA-námi frá University of the Highlands and Islands í Skotlandi fyrr á þessu ári. Hún hefur víðtæka reynslu af hjúkrun og stjórnun, bæði hér heima og í Kanada, þar sem hún starfaði meðal annars sem hjúkrunarforstjóri á hjúkrunarheimilum í Ontario-fylki.

Ásta er starfsfólki HSU og starfseminni að góðu kunn, en hún hefur stýrt hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi frá árinu 2023.

„Að taka að mér hlutverk framkvæmdarstjóra hjúkrunar hjá HSU er einstakt tækifæri. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum, leiða áfram og byggja á því öfluga hjúkrunarstarfi sem unnið er innan stofnunarinnar, í nánu samstarfi við starfsfólk og stjórnendur, með það að markmiði að efla þjónustu og starfsumhverfi til framtíðar,“ segir Ásta.

Við óskum Ástu velfarnaðar í starfi og veitum Baldvinu Ýr Hafsteinsdóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra hjúkrunar, okkar bestu þakkir fyrir afar gott og mikilvægt starf í þágu HSU.