Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Ársfundur

29. maí 2026

Frétt

Heilbrigðisstofnun Suðurlands stóð fyrir vel heppnuðum ársfundi í gær.Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra opnaði fundinn með rafrænu ávarpi. Díana Óskarsdóttir, forstjóri leit yfir farinn veg, rifjaði upp það sem vel tókst árið 2025 og hvaða tækifæri eru framundan. Margrét Björk Svavarsdóttir, framvæmdastjóri fjármála greindi frá ársreikningi og rekstrarstöðu stofnunarinnar. Þá var Elín Freyja Hauksdóttir, yfirlæknir á heilsugæslunni á Höfn með erindi um bráðaþjónustu á Suðurlandi.

Þegar formlegri dagskrá var lokið var starfsfólk sem hefur nýverið hætt störfum á stofnuninni vegna aldurs heiðrað. Til gamans má geta að samanlagður starfsaldur þessa hóps var um 400 ár. Við þökkum þeim kærlega fyrir þeirra mikilvægu störf.

Að lokum gaf Lionsklúbburinn Embla bráðamóttökunni og bráðalyflækningadeildinni á Selfossi nýjan blöðruskanna sem mun nýtast vel og þökkum við þeim og öðrum sem hafa styrkt stofnunina með einum eða öðrum hætti kærlega fyrir.

Ársfundinum var streymt og er hægt að horfa á hann hér: https://www.youtube.com/live/iufkymVh71c

Ársskýrsluna er hægt að lesa hér: https://island.is/s/hsu/utgefid-efni?q=%C3%81rssk%C3%BDrsla

Við þökkum þeim sem komu kærlega fyrir komuna og þeim sem gáfu sér tíma til að horfa í streymi.