Áríðandi staðreyndir um hjúkrunarrými á Selfossi
9. júní 2026
Sagt hefur verið frá því í fréttum RÚV að fyrir dyrum standi að loka hjúkrunardeildunum Fossheimum og Ljósheimum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. Af fyrstu frétt um málið mátti skilja að lokun 20 hjúkrunarrýma væri yfirvofandi, sem er ekki rétt. Heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Suðurlands vilja koma eftirfarandi staðreyndum máls á framfæri við alla sem málið varðar.

Breytingar um mitt næsta ár
Gert er ráð fyrir að um mitt næsta ár hefjist fyrsti áfangi framkvæmda við endurbætur og viðbyggingu húsnæðis Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Markmið verkefnisins er að bæta húsnæðisaðstöðu, styrkja þjónustu og skapa betri umgjörð fyrir sjúklinga, íbúa og starfsfólk til framtíðar. Þegar framkvæmdir hefjast, þ.e. eftir um það bil eitt ár, verður hjúkrunardeildinni Ljósheimum þar sem eru 20 hjúkrunarrými lokað og starfsemi heilsugæslunnar færð þangað en engar breytingar verða á rekstri Fossheima.
Þegar nær dregur lokun Ljósheima, verður hætt að taka við nýjum íbúum inn á hjúkrunardeildina þegar rými losna. Þegar rekstri deildarinnar verður svo hætt um mitt næsta ár verður íbúunum sem þar búa boðinn flutningur á annað hjúkrunarheimili. Þar koma til greina hjúkrunardeildin Fossheimar, hjúkrunarheimilið Móberg og hjúkrunarheimilið Ás í Hveragerði eða annað hjúkrunarheimili í samráði við óskir íbúa.
Stjórnendur og starfsfólk HSU leggja metnað sinn í vandaðan undirbúning fyrir lokun Ljósheima að ári þannig að sem minnst rask verði á högum íbúa hjúkrunardeildarinnar og aðstandenda þeirra. Enginn þarf að óttast að vera skilinn frá maka sínum eða gert að flytja á hjúkrunarheimili um langan veg fjarri sinni heimabyggð.
Hjúkrunarrýmum á Suðurlandi fjölgar
Þrátt fyrir lokun Ljósheima mun hjúkrunarrýmum ekki fækka á Suðurlandi, um mitt næsta ár verður opnað nýtt hjúkrunarheimili Áss í Hveragerði. Með þeirri framkvæmd fjölgar hjúkrunarrýmum þar um 26. Þess skal einnig getið að Landspítali hafði til skamms tíma forgang að 40 af 60 hjúkrunarrýmum á Móbergi vegna skorts á hjúkrunarrýmum á höfuðborgarsvæðinu. Það leiddi til þess að nokkuð var um að íbúar af höfuðborgarsvæðinu flyttust á Móberg. Þessi forgangur Landspítala að rýmum á Móbergi er ekki lengur fyrir hendi, enda hafa aðstæður á höfuðborgarsvæðinu breyst til hins betra með opnun 100 rýma í Urðarhvarfi í vor og fleiri rýmum í farvatninu. Móberg mun því nýtast íbúum Suðurlands í auknum mæli.
