Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Anita Ársælsdóttir hjúkrunarstjóri í Vestmannaeyjum

1. nóvember 2026

Anita Ársælsdóttir hefur tekið við starfi hjúkrunarstjóra á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum.

Anita Ársælsdóttir, hjúkrunarstjóri í Vestmannaeyjum

Anita lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði 2007 frá Hjúkrunarfræðiskólanum í Kaupmannahöfn og ásamt því að hafa bæði unnið á bæklunarskurðstofu í Odense og ristilspeglunardeild á sjúkrahúsinu í Vejle í Danmörku. Anita er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur í ungbarnavernd síðasta áratug ásamt þess að hafa leyst af sem deildarstjóri á sjúkradeild í Eyjum. Anita situr einnig í fagráði HSU, sem skipað var í byrjun árs 2026.

„Ég hlakka mikið til að takast á við þetta nýja hlutverk með því öfluga starfsfólki sem starfar á heilsugæslunni í Eyjum og halda áfram að efla góða og aðgengilega heilsugæsluþjónustu fyrir íbúa Vestmannaeyja.“

Við bjóðum Anitu velkomna í nýtt hlutverk og þökkum Iðunni Dísu Jóhannesdóttur, fráfarandi hjúkrunarstjóra, fyrir gott starf. Iðunn Dísa er þó hvergi á förum því hún starfar áfram á heilsugæslunni í Vestmannaeyjum þar sem reynsla hennar og þekking nýtist áfram.