Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Tímabundin lokun skurðstofu Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað

29. júní 2026

Vegna nauðsynlegra endurbóta og viðhalds á húsnæði verður skurðstofan við Umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað lokuð á tímabilinu 8. júlí 2026 til 14. ágúst 2026. Framkvæmdirnar eru hluti af skipulögðum endurbótum á húsnæði sjúkrahússins sem unnið hefur verið að síðustu ár.

Á meðan á lokun stendur verður ekki hægt að bjóða upp á skurðaðgerðir eða fæðingaþjónustu við Umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað.

Skurð- og svæfingarlæknar HSA munu þó áfram geta veitt aðstoð við einfaldari inngrip í slævingu ef þörf krefur.

Ljósmæður HSA verða áfram á vakt á tímabilinu og staðsettar ýmist á Egilsstöðum eða í Fjarðabyggð, eftir þörfum þjónustunnar.

Neyðarþjónusta verður tryggð allan tímann. Fyrirfram skipulögðum aðgerðum og flestum bráðaerindum sem krefjast skurðstofu eða svæfingaþjónustu verður vísað til Sjúkrahússins á Akureyri eða Landspítala eftir eðli máls og klínísku mati.

HSA biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi tímabundna lokun kann að valda og þakkar íbúum Austurlands fyrir sýndan skilning á meðan unnið er að nauðsynlegum endurbótum sem munu bæta aðstöðuna og styðja við þjónustuna til framtíðar.

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Aðalskrif­stofa

Lagarás 22,
700 Egilstaðir

470 3050
info@hsa.is

kt. 610199-2839

Gæðamál og vottanir

Neskaupstaður
470 1450

Egilsstaðir
470 3000

Reyðarfjörður
470 1420

Eskifjörður
470 1430

Seyðisfjörður
470 3060

Vopnafjörður
470 3070

Fáskrúðsfjörður
470 3080

Stöðvarfjörður
470 3088

Breiðdalsvík
470 3099

Djúpi­vogur
470 3090