Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tilkynning frá umdæmislækni sóttvarna á Austurlandi

24. apríl 2024

(POLSKI - ENGLISH)

Vegna mislingatilfellis sem greindist á NA-horni landsins 19.apríl sl. minnir umdæmislæknir sóttvarna á Austurlandi á tilkynningu sóttvarnalæknis, á íslensku, ensku og pólsku sem lesa má HÉR.

Meðal þess mikilvæga sem þar kemur fram er:

  • Að einkenni koma fram 1 – 3 vikum eftir smit (fjölmenningarhátíðin var 14.apríl).

  • Smithætta fyrir óbólusetta.

  • Sýkingavarnir og hverjir teljast viðkvæmir einstaklingar í því sambandi.

Þetta er áréttað til að gera fólki kleift að taka sínar ákvarðanir um hvernig rétt sé að halda sig til hlés, sjálfs sín og annarra vegna.

Bólusetningar: Íbúar á Vopnafirði og Bakkafirði fæddir 1975 – 1987 eru hvattir til að skoða bólusetningarstöðu sína gagnvart mislingum, bæði á pappír (bólusetningarskírteini) og á heilsuvera.is.

Þau sem ekki hafa fengið tvær bólusetningar eru hvött til að þiggja bólusetningu. Teljir þú þig þurfa bólusetningu við mislingum þá hafðu samband í síma 470-3001, 26.apríl – 3.maí kl.11-13. Bólusetningin er þessum einstaklingum að kostnaðarlausu.

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Aðalskrif­stofa

Lagarás 22,
700 Egilstaðir

470 3050
info@hsa.is

kt. 610199-2839

Gæðamál og vottanir

Neskaupstaður
470 1450

Egilsstaðir
470 3000

Reyðarfjörður
470 1420

Eskifjörður
470 1430

Seyðisfjörður
470 3060

Vopnafjörður
470 3070

Fáskrúðsfjörður
470 3080

Stöðvarfjörður
470 3088

Breiðdalsvík
470 3099

Djúpi­vogur
470 3090