Þórarna Gró sett forstjóri HSA til 1. september
1. júní 2026
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur sett Þórörnu Gró Friðjónsdóttur til að gegna embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) frá 1. júní, þegar Guðjón Hauksson lætur af embættinu og tekur við starfi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.

Þórarna er með BS-gráðu í sálfræði og MS-gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað hjá HSA sl. átta ár, fyrst sem rekstrarstjóri á Egilsstöðum og Vopnafirði en síðustu fjögur ár hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri mannauðs hjá HSA.
Embætti forstjóra HSA hefur verið auglýst laust til umsóknar og er umsóknarfrstur til 22. júní. Gert er ráð fyrir að nýr forstjóri stofnunarinnar verði skipaður 1. september næstkomandi og er Þórarna sett til þess tíma.
Guðjóni, fráfarandi forstjóra HSA, eru færðar kærar þakkir fyrir farsælt samstarf, öflugt starf og mikilvægt framlag til uppbyggingar og þróunar heilbrigðisþjónustu á Austurlandi á undanförnum árum. Honum eru jafnframt færðar bestu óskir um velfarnað og góðs gengis í nýju starfi sem forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri.
Um leið óskum við Þórörnu Gró til hamingju með nýtt hlutverk og velfarnaðar í starfi sem settur forstjóri HSA. Með reynslu sinni og þekkingu á starfsemi stofnunarinnar er hún vel í stakk búin til að leiða HSA á komandi mánuðum.