Talmeinafræðingur
19. febrúar 2026
Edda Óttarsdóttir talmeinafræðingur starfar á heilsugæslustöðvunum á Egilsstöðum og í Fjarðabyggð.

Hún sinnir greiningu og þjálfun hjá fullorðnum og börnum vegna erfiðleika við tal og mál auk raddvandamála. Einnig veitir hún ráðgjöf og greiningu vegna vanda við kyngingu eða fæðuinntöku.
Tímapantanir í síma 470-3000.
Athugið að í sumum tilfellum heyrir þjónusta við börn undir Skólaþjónustu sveitarfélaga.