Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Taktu þátt í könnun fyrir opnun á Samkomuhúsinu - Geðræktar- og virknimiðstöð á Austurlandi!

11. apríl 2025

Þessi könnun er liður í undirbúningi fyrir opnun geðræktar- og virknimiðstöðvar á Austurlandi sem gengur undir vinnuheitinu Samkomuhús. Verkefnið er samstarf Austurbrúar, Heilbrigðisstofnunar Austurlands, Starfsendurhæfingar Austurlands og félagþjónustu Fjarðabyggðar og Múlaþings, unnið fyrir styrk úr Alcoa Foundation.

Fyrirhugað er að hefja tilraunastarfsemi haustið 2025 á tveimur stöðum, Egilsstöðum og Reyðarfirði. Til að mæta þörfum þeirra sem hafa áhuga og þörf á að nýta sér slíkt úrræði er nauðsynlegt að fá innlegg og hugmyndir sem auka líkurnar á því að vel takist til. Við viljum því fá svör frá íbúum Austurlands og sérstaklega þeim sem sjá fyrir sér að nýta úrræðið. Á undirbúningsstiginu verður einnig rætt við líklega notendur með því að setja saman 6-8 manna rýnihópa í Fjarðabyggð og í Múlaþingi, áhugasamir um þátttöku í slíku samtali mega gjarnan hafa samband við verkefnisstjóra hjá Austurbrú eða sinn tengilið hjá samstarfsaðilum verkefnisins. Unnið verður með svörin sem eina heild og engin svör rakin til einstaklinga. Svörun tekur að meðaltali 2-5 mínútur.

https://www.surveymonkey.com/r/samkomuhus

Ef einhverjar spurningar vakna við svörun spurninganna eða áhugi er á þátttöku í rýnihópi má hafa samband við verkefnisstjóra verkefnisins: Tinna Halldórsdóttir | tinna@austurbru.is

Hér má sjá frétt um verkefnið Alcoa Foundation styrkir nýtt geðheilbrigðisúrræði | Austurbrú

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Aðalskrif­stofa

Lagarás 22,
700 Egilstaðir

470 3050
info@hsa.is

kt. 610199-2839

Gæðamál og vottanir

Neskaupstaður
470 1450

Egilsstaðir
470 3000

Reyðarfjörður
470 1420

Eskifjörður
470 1430

Seyðisfjörður
470 3060

Vopnafjörður
470 3070

Fáskrúðsfjörður
470 3080

Stöðvarfjörður
470 3088

Breiðdalsvík
470 3099

Djúpi­vogur
470 3090