Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Niðurstöður RAI mat fyrir hjúkrunarheimili HSA tímabilið nóv-feb 2026

26. mars 2026

RAI mat er notað til að meta gæði þjónustu og þarfir íbúa á hjúkrunarheimilunum (Raunverulegur aðbúnaður íbúa). Þetta mat er gert þrisvar sinnum yfir árið og er ætlað að meta heilsufar og hjúkrunarþarfir íbúa þar sem stuðst er við niðurstöður 20 gæðavísa. Hafa þarf í huga að gæðavísar eru vísbendingar um hvernig meðferð og umönnun er á hjúkrunarheimilum en ekki algildur sannleikur.

Gæðaviðmið fyrir einstaka gæðavísa hafa bæði efri og neðri gæðaviðmið. Lélegt gæðaviðmið (efri mörk) gefur til kynna að viðfangsefni þurfi að kanna frekar og leita leiða til umbóta. Gott gæðaviðmið (neðri mörk) er það viðmið sem talið er lýsa góðri eða framúrskarandi umönnun og meðferð.

Af 20 gæðaviðmiðum fer HSA yfir efri gæðaviðmið í 2 gæðavísum á tímabilinu nóv-feb 2026, sem er 2 gæðavísum minna en síðast. Af þessum 2 gæðaviðmiðum er landsmeðaltalið einnig yfir í öðrum þeirra og á línunni í efra gæðaviðmiði í hinu. HSA er undir neðra gæðaviðmiði í 4 gæðavísum sem er tveimur fleiri gæðavísum en síðast. Landsmeðaltalið fer aldrei undir neðra gæðaviðmið. Ef borin eru saman útkoma gæðavísa hjá HSA annars vegar og landsmeðaltals hins vegar er HSA undir landsmeðaltali í 6 gæðavísum (tveimur fleiri en síðast), svipuð niðurstaða og landsmeðaltalið í öðrum 6 gæðavísum (var 4) og yfir landsmeðaltali í 8 gæðavísum (var 12).

HSA stendur vel að vígi hvað varðar gæðavísa um algengi líkamsfjötra, algengi rúmfastra íbúa, algengi þvag og hægðaleka án reglubundinna salernisferða og algengi hægðastíflu, er undir neðra gæðaviðmiði þar sem og landsmeðaltali. HSA hefur náð góðum árangri með gæðaviðmið um algengi þvagfærasýkingar, er komið að neðra gæðaviðmiðið þar og er nú töluvert undir landsmeðaltali en undanfarið hefur verið unnið taktfast að því að draga úr þvagfærasýkingum á hjúkrunarheimilum m.a. með því að efla fræðslu til starfsfólks. Einnig hefur vinna við að bæta gæðivísinn um þunglyndiseinkenni skilað árangri og er HSA nú komið niður fyrir efra gæðaviðmiði í algengi þunglyndiseinkenna án meðferðar. Eins hefur gæðaviðmið um þunglyndiseinkenni lækkað aðeins síðan síðast. Þau atriði sem skoða þarf betur snýr að algengni á notkun 9 eða fleiri lyfja og algengi þvagleggja, HSA er yfir efra gæðaviðmiði og landsmeðaltali þar og stendur svo til í stað frá síðustu mælingum.

Hægt er að meta svokallaða hjúkrunarþyngd með RAI mælitækinu en hjúkrunarþyngd er notuð til að gefa til kynna hversu mikið álag er á hjúkrunarheimilum yfir ákveðið tímabil.

Hjúkrunarþyngd á hjúkrunarheimilum HSA mældist 1,12 fyrir tímabilið nóv-feb 2026, hækkar töluvert frá því síðast eða um 0,05. Þetta er þó enn undir landsmeðaltali þar sem hjúkrunarþyngd er 1,26. Af þeim 97 sem voru metnir mælast 9 skjólstæðingar HSA með hjúkrunarþyngd um eða yfir landsmeðaltali, þeir sem skora hæst eru með 1,63. Lægsta skor er 0,89 en miðgildi er 1,12 eða það sama og meðaltalið.

Við mat á hjúkrunarþyngd er notast við RUG flokkun og fer flokkunin eftir því hversu flókin eða sérhæfð hjúkrunin er auk þess hve mikla aðstoð íbúi þarf við ADL (athafnir daglegs lífs) eða hversu mikla þjálfun/virkni viðkomandi fær á hjúkrunarheimilinu. Þetta þýðir í raun hversu mikla þjónustu viðkomandi fær inn á hjúkrunarheimilinu. Flokkarnir eru alls 7 en skiptast svo í 44 undirflokka eftir því hversu mörg stig viðkomandi fær vegna ADL. Um 40% íbúa hjúkrunarheimila HSA falla í flokk um sérstaka endurhæfingu og um 25% í flokk um skerta líkamlega færni. Þess má geta að hæst er hægt að fá 1,79 stig í efsta flokki sérstakrar endurhæfingu, næsthæst er í efsta flokki umfangsmikil hjúkrun (1,63) en lægst 0,66 stig í neðsta flokknum um hegðunarvanda. Íbúar geta lent í öllum þessum flokkum en skráist í þann flokk sem hefur hæsta vægi.

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Aðalskrif­stofa

Lagarás 22,
700 Egilstaðir

470 3050
info@hsa.is

kt. 610199-2839

Gæðamál og vottanir

Neskaupstaður
470 1450

Egilsstaðir
470 3000

Reyðarfjörður
470 1420

Eskifjörður
470 1430

Seyðisfjörður
470 3060

Vopnafjörður
470 3070

Fáskrúðsfjörður
470 3080

Stöðvarfjörður
470 3088

Breiðdalsvík
470 3099

Djúpi­vogur
470 3090