Fara beint í efnið

Námskeið fyrir foreldra barna með kvíða

18. janúar 2024

Á heilsugæslunni á Egilsstöðum verður boðið upp á námskeið fyrir foreldra 6-12 ára barna sem eru með kvíða. Námskeiðið hefur það að markmiði að kenna foreldrum aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar og efla foreldra í að nota aðferðirnar með barninu sínu til að vinna á kvíða,  efla hugrekki og sjálfstraust. Algeng kvíðaeinkenni sem börn sýna eru ótti við að sofa ein, labba ein úti, ótti við hunda eða ótti við að eitthvað komi fyrir foreldra sína. Slík óttaeinkenni geta aukist við náttúruhamfarir eins og snjóflóð, eldgos og rýmingar.

Heilbrigðisstofnun Austurlands mekri með texta

Námskeiðið samanstendur af 5 tímum á 6 vikna tímabili (fyrst 4 tímar, síðan viku hlé og svo 5. tíminn) auk eftirfylgdarviðtals.  

Námskeiðið hefst mánudaginn 5.02 2024  kl. 13:00 - 15:00 í Giljasal á heilsugæslunni á Egilsstöðum og lýkur 11.03 2024.  

Eftirfylgdarviðtöl verða í apríl 2024.  

Í öllum námskeiðstímunum er unnið með bókinni „Hjálp fyrir kvíðin börn“ og eru sett fyrir heimaverkefni fyrir foreldrana, sem fela m.a. í sér talsverðan lestur og því er mikilvægt að foreldrar skuldbindi sig til að sinna þessari meðferð á meðferðartímanum og kaupa sér fyrir fram bókina sem fæst í flestum netverslunum.  

https://www.forlagid.is/vara/hjalp-fyrir-kvidin-born/ 

https://skrudda.is/?product=hjalp-fyrir-kvidin-born 

https://www.storytel.com/is/books/hj%C3%A1lp-fyrir-kv%C3%AD%C3%B0in-b%C3%B6rn-1719462 

Námskeiðið er eingöngu ætlað foreldrum en börnin eru velkomin með í eftirfylgdartímann í lokin. Æskilegt er að báðir foreldrar mæti í námskeiðstímana þegar hægt er að koma því við.  

Námskeiðsgjald er 2.500 kr og reikningur er sendur í heimabankann að námskeiði loknu. 

Leiðbeinendur á námskeiðinu verða Sigurlín H. Kjartansdóttir yfirsálfræðingur og Védís Klara Þórðardóttir hjúkrunarfræðingur í geðheilsuteymi HSA. 

Skráning fer fram í gegnum tölvupóst, sigurlin.h.kjartansdottir@hsa.is, hægt er að skrá sig til föstudagsins 2. febrúar 2024.