HSA tók þátt í starfamessu Austurlands
20. september 2024
Heilbrigðisstofnun Austurlands tók þátt í starfamessu Austurlands sem Austurbrú stóð fyrir fimmtudaginn 19. september í íþróttahúsinu Egilsstöðum. Þar kynnti stofnunin þau fjölmörgu störf sem u.þ.b. 480 starfsmenn sinna á fjórtán starfsstöðvum sem eru vítt og breytt um Austurland. HSA þakkar kærlega fyrir sig og sérstaklega þeim fjölmörgu ungmennum sem heimsóttu okkur og fræddust um starfsemina.