HSA hélt ársfund og fræðadag í Neskaupstað
13. maí 2026
Ársfundur og Vísinda- og fræðadagur Heilbrigðisstofnunar Austurlands fóru fram í Neskaupstaður föstudaginn 8. maí síðastliðinn.

Dagskráin hófst með ársfundi þar sem forstjóri og framkvæmdastjórn HSA fóru yfir rekstur stofnunarinnar, starfsemistölur og það helsta sem stóð upp úr á árinu 2025.

Að loknum ársfundinum tók við Vísinda- og fræðadagur HSA þar sem boðið var upp á fjölbreytta og fræðandi dagskrá. Dagskráin var fjölbreytt en starfsfólk stofnunarinnar kynnti meðal annars lokaverkefni sín, rannsóknir og ýmis verkefni sem unnið er að innan HSA og það mikilvæga faglega þróunarstarf sem þar fer fram. Auk starfsfólks HSA fluttu einnig aðrir gestir og samstarfsaðilar áhugaverð erindi á deginum.

Viðburðurinn var vel sóttur og skapaðist góður vettvangur fyrir starfsfólk og gesti til að miðla þekkingu, efla faglegt samtal og kynna þau fjölmörgu verkefni sem unnin eru innan HSA.
