Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Gjöf til Heilbrigðisstofnunar Austurlands frá Oddfellow

21. mars 2024

Þriðjudaginn 19.mars tók Guðjón Hauksson forstjóri með forlegum hætti við gjöf frá Oddfellow fyrir hönd Heilbrigðisstofnunar Austurlands.

Heildarverðmæti gjafarinnar er um 25 milljónir króna og var nýtt til tækjakaupa en tækin verða staðsett á fjölmörgum starfsstöðvum stofnunarinnar:

Umdæmissjúkrahúsið í Neskaupstað

  • Þráðlaus hjartasýrit sem gerir það að verkum að þau okkar sem þurfa stöðugt eftirlit hjartavöðvans við innlögn þurfa ekki lengur að vera rúmliggjandi heldur geta gengið um.

  • Filmarey rannsóknartæki sem gerir það að verkum að hægt er að greina hér á svæðinu hinar ýmsu veirur og bakteríur sem við áður þurftum að senda til rannsóknar annað.

Heilsugæslan Egilsstöðum

  • Eyrnasmásjá.

  • Búnaður sem auðveldar umbúnað látinna t.d. kælar og bekkir sem skiptir okkur verulegu máli enda er það metnaður okkar að sýna ýtrustu virðingu við slíkar aðstæður.

Heilsugæslan Djúpavogi

  • Holter hjartarannsóknartæki sem gerir okkur kleyft að rannsaka yfir langan tíma, allt að 24 klst starfsemi hjartavöðvans á meðan þjónustuþegi heldur áfram sinni daglegu iðju. Áður þurftu íbúar þar að fara á Reyðarfjörð eða á Egilsstaði fyrir slíka rannsókn.

Heilsugæslan Fjarðabyggð

  • Skilvinda sem skilur að blóðvökva og gerir okkur kleyft að rannsaka hina ýmsu þætti blóðsins.

  • Stóll sem notaður er í skoðanir háls-, nef- og eyrnalæknis.

  • Tæki til að skoða augnbotna.

  • Blóðtökustóll.

HeilsugæslanSeyðisfirði

  • Blóðtökustóll.

HSA þakkar innilega fyrir höfðinglega gjöf en hún er stofnuninni hvatning til uppbyggingar heilbrigðisþjónustu fyrir alla íbúa Austurlands.

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Aðalskrif­stofa

Lagarás 22,
700 Egilstaðir

470 3050
info@hsa.is

kt. 610199-2839

Gæðamál og vottanir

Neskaupstaður
470 1450

Egilsstaðir
470 3000

Reyðarfjörður
470 1420

Eskifjörður
470 1430

Seyðisfjörður
470 3060

Vopnafjörður
470 3070

Fáskrúðsfjörður
470 3080

Stöðvarfjörður
470 3088

Breiðdalsvík
470 3099

Djúpi­vogur
470 3090