Fræðslufundur um viðbrögð við áföllum
24. apríl 2023
Fræðslufundur á vegum Fjarðabyggðar og Heilbrigðisstofnunar Austurlands um viðbrögð við áföllum.
Fræðslufundur á vegum Fjarðabyggðar og Heilbrigðisstofnunar Austurlands um viðbrögð við áföllum verður haldinn þriðjudaginn 25. apríl klukkan 17:00 í Egilsbúð, Neskaupstað.
Ákveðið var að bjóða til fræðslufundar í ljósi atburðanna í lok síðasta mánaðar og vegna ábendinga um að eðlilega hefðu snjóflóðin og rýmingarnar núna ýft upp minningar og tilfinningar vegna atburðanna 1974.
Dagskrá
Sigurlín Hrund Kjartansdóttir sálfræðingur hjá HSA flytur erindi um áföll og viðbrögð við áföllum.
Guðrún Smáradóttir segir frá reynslu sinni og upplifun af snjóflóðunum 1974 og 2023.
Karitas Harpa Davíðsdóttir syngur nokkur lög.