Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Þessi frétt er meira en árs gömul

Breytingar á reglum um ferðakostnað innanlands

27. júní 2024

Breyting verður á umsóknum vegna ferðakostnaðar innanlands frá 1.júlí 2024, vegna breytingar á reglugerð nr. 1140/2019.

Lykilbreytingar eru þessar og gilda um ferðir sem eru farnar 1. júlí 2024 og síðar:

  1. Grunnréttur sjúkratryggðra til greiðsluþátttöku í ferðakostnaði verða

    fjórar ferðir.

    Í ferðum umfram 20 km á hverju almanaksári. Rétturinn hefur verið 3 ferðir á ári frá síðustu áramótum, en hafði þar áður lengi verið tvær ferðir á hverjum 12 mánuðum. Áfram er skilyrði að um sé að ræða nauðsynlega sjúkdómsmeðferð sem ekki er hægt að fá í heimabyggð.

  2. Ekki þarf lengur að skila læknisvottorði vegna grunnréttarins sem nú verður fjórar ferðir á almanaksári.

    Einstaklingur getur snúið sér til umboðs Sjúkratrygginga hjá sýslumönnum um landið og fengið ferðakostnað greiddan á grundvelli ferðagagna á borð við flugmiða eða greiðslukvittunar fyrir eldsneyti. Ef rafrænn reikningur fyrir komu í heilbrigðisþjónustu liggur fyrir hjá Sjúkratryggingum þarf engum frekari gögnum að skila. Liggi slíkur reikningur ekki fyrir þarf að sýna fram á greiðslu fyrir komu eða aðra staðfestingu á komu. Gögnum má skila með rafrænum hætti.

  3. Læknar og ljósmæður þurfa áfram að sækja um ferðakostnað vegna ítrekaðra ferða í tengslum við alvarlega sjúkdóma. Sótt er um slíkan ferðakostnað á eyðublaðinu Skýrsla vegna ferðakostnaðar innanlands, sem aðgengilegt er á vefsíðu sjúkratrygginga undir Eyðublöð.

Fyrirspurnir má senda á ferdakostnadur@sjukra.is

Enn aukið við rétt til ferðakostnaðar innanlands 2024 | Sjúkratryggingar (island.is)

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Aðalskrif­stofa

Lagarás 22,
700 Egilstaðir

470 3050
info@hsa.is

kt. 610199-2839

Gæðamál og vottanir

Neskaupstaður
470 1450

Egilsstaðir
470 3000

Reyðarfjörður
470 1420

Eskifjörður
470 1430

Seyðisfjörður
470 3060

Vopnafjörður
470 3070

Fáskrúðsfjörður
470 3080

Stöðvarfjörður
470 3088

Breiðdalsvík
470 3099

Djúpi­vogur
470 3090