Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Bólusett gegn inflúensu hjá HSA í haust

14. október 2026

Áhættuhópum verður boðið upp á bólusetningar við inflúensu á heilsugæslustöðvum HSA eftir miðjan október og öðrum sem vilja bólusetningu í nóvember.

Tvær gerðir af bóluefni verða notaðar við bólusetningar við inflúensu í haust samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnalækni.

  1. Hefðbundið óvirkjað inflúensubóluefni sem hæfir börnum frá 6 mánaða aldri og fullorðnum. Búist er við því að efnið verði fáanlegt frá miðjum október.

  2. Lifandi veiklað nefúðabóluefni ætlað fyrir öll börn 2 til 4 ára og fyrir 5 til 17 ára börn sem eru í áhættuhópum. Börn sem ekki geta notað nefúðabóluefnið geta fengið hefðbundið bóluefni ef það hentar. Bóluefnið er eingöngu ætlað þessum skilgreindu hópum og ekki hægt að kaupa það á heilsugæslustöðvum. Reiknað er með því að efnið verði fáanlegt snemma í október.

Áhættuhópar í forgangi

HSA mun fylgja tilmælum sóttvarnalæknis og forgangsraða bólusetningum fyrstu vikurnar til fólks í áhættuhópum.

Tilkynnt verður síðar hvaða dag bólusetningarnar byrja.

Áhættuhóparnir eru:

  • Fólk 60 ára og eldra.

  • Börn milli 6 mánaða og 5 ára aldurs.

  • Börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.

  • Barnshafandi einstaklingar.

  • Heilbrigðisstarfsfólk sem annast fólk í áhættuhópum.

  • Fólk sem telst í áhættu á samsmiti inflúensu og fuglainflúensu vegna starfs síns, samkvæmt skilgreiningu sóttvarnalæknis.

Fólk í áhættuhópum greiðir ekki fyrir bólusetningu.

Öðrum boðin bólusetning í nóvember

Eftir að átak hefur verið gert í að bólusetja fólk í áhættuhópum verður öðrum boðið upp á að koma á heilsugæslustöðvar og þiggja bólusetningu.

Búast má við því að það verði í nóvember en tilkynnt verður um nákvæma tímasetningu síðar.

Fólk sem ekki er í áhættuhópum greiðir ekki hefðbundið komugjald á heilsugæslustöð en greiðir fyrir bóluefnið samkvæmt gjaldskrá.

Nánari upplýsingar

Allar frekari upplýsingar um árlegar bólusetningar við inflúensu má finna á vef embættis landlæknis.

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Aðalskrif­stofa

Lagarás 22,
700 Egilstaðir

470 3050
info@hsa.is

kt. 610199-2839

Gæðamál og vottanir

Neskaupstaður
470 1450

Egilsstaðir
470 3000

Reyðarfjörður
470 1420

Eskifjörður
470 1430

Seyðisfjörður
470 3060

Vopnafjörður
470 3070

Fáskrúðsfjörður
470 3080

Stöðvarfjörður
470 3088

Breiðdalsvík
470 3099

Djúpi­vogur
470 3090