Inflúensubólusetning fyrir börn
25. október 2023
Bólusetning gegn inflúensu fyrir börn fædd frá 2020 niður í 6 mánaða (miðað er við að þau séu orðin 6 mánaða þegar þau fá bólusetninguna).
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/7jcQvkOVCVf6elj1hHt8l7/2a8a5d9a83e43f52bddcef5a0e7b10f4/LOGO_HSA_nytt-002.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Heilbrigðisstofnun Austurlands mekri með texta](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/7jcQvkOVCVf6elj1hHt8l7/2a8a5d9a83e43f52bddcef5a0e7b10f4/LOGO_HSA_nytt-002.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Eins og síðasta ár er þessi aldurshópur í forgangshópi að fá bólusetninguna. Hún mun standa til boða í ung og smábarnaskoðunum fram í janúar, en ef foreldrar vilja fá tíma fyrir börn sín á öðrum tímum vinsamlega pantið tíma í síma 470 - 3001.
Bólusetningin er að kostnaðarlausu.