Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Austurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfara

8. september 2026

Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfara er í dag 8. september.

Hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands starfa 11 sjúkraþjálfarar sem sinna fjölbreyttum verkefnum víða í starfsemi HSA, meðal annars á endurhæfingardeildum á Egilsstöðum og í Neskaupstað, á heilsugæslum og á hjúkrunarheimilum.

Starf sjúkraþjálfara er fjölbreytt en þau styðja fólk við að bæta hreyfigetu, styrk, jafnvægi og færni, draga úr verkjum og stuðla að auknum lífsgæðum. Þau sinna fólki á öllum aldri og við ólíkar aðstæður – allt frá endurhæfingu eftir veikindi, aðgerðir eða slys til þess að viðhalda færni og sjálfstæði til lengri tíma.

Við hjá HSA erum afar þakklát fyrir okkar öfluga hóp sjúkraþjálfara og það mikilvæga starf sem þeir vinna alla daga fyrir fólk á Austurlandi

Til hamingju með daginn, sjúkraþjálfarar!

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Aðalskrif­stofa

Lagarás 22,
700 Egilstaðir

470 3050
info@hsa.is

kt. 610199-2839

Gæðamál og vottanir

Neskaupstaður
470 1450

Egilsstaðir
470 3000

Reyðarfjörður
470 1420

Eskifjörður
470 1430

Seyðisfjörður
470 3060

Vopnafjörður
470 3070

Fáskrúðsfjörður
470 3080

Stöðvarfjörður
470 3088

Breiðdalsvík
470 3099

Djúpi­vogur
470 3090