Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana
Efnisyfirlit
Þjónusta
Í markhópi teymisins eru einstaklingar 18 ára og eldri með alvarlegar og/eða óvenjulegar taugaþroskaraskanir en fyrst og fremst þroskahömlun.
Hluti hópsins er með einhverfu auk annars samþætts heilsufarsvanda tengdum fötlun, til dæmis flogaveiki, CP og/eða hreyfihömlun. Að auki þarf að vera til staðar klínískur geðrænn vandi og/eða krefjandi hegðun.
Teymiðsinnir ekki frumgreiningu vegna gruns um einhverfu eða skyldar raskanir.
Þjónustan er þverfagleg og er veitt með heimavitjunum og viðtölum í húsnæði teymisins.
Teymið:
Eflir styrkleika til að ná tökum á bata og líðan.
Fræðir um hvernig ná má jafnvægi í daglegu lífi.
Eykur skilning, styrk og getu til að takast á við geðrænan vanda.
Í boði er:
Mat á andlegri líðan og líkamlegu ástandi.
Mat á lyfjameðferð.
Meðferð, fræðsla og stuðningur til einstaklingsins, fjölskyldu hans og/eða stuðningsaðila.
Stuðningur til að auka félagslega virkni og gildi í daglegu lífi.
Ráðleggingar um hvar hægt er að fá frekari stuðning eða fræðslu.
Markmiðin með þjónustu teymisins eru að:
Stuðla að og viðhalda bata og færni.
Tryggja einstaklingsmiðaða þjónustu.
Tryggja samfellu og samþættingu í meðferð.
Efla sálrænt og félagslegt heilbrigði einstaklingsins.
Hvetja til sjálfshjálpar og sjálfsvirðingar.
Styðja einstaklinginn í að lifa innihaldsríku lífi.
Veita stuðning og ráðgjöf til aðstandenda og starfsfólks stoðþjónustu sveitarfélaga.
Teymið byggir á þverfaglegri samvinnu. Samsetning fagstétta hverju sinni getur verið mismunandi en oftast atferlisfræðingur, geðlæknir, heimilislæknir, hjúkrunarfræðingur, iðjuþjálfi, sálfræðingur og þroskaþjálfi.
Áhersla er á samskipti við hinar ýmsu stofnanir, þjónustu- og stuðningsaðila og félagasamtök.
Fagstjóri: Bjargey Una Hinriksdóttir
Yfirlæknir: Dagur Bjarnason
