Geðheilsuteymi fangelsa
Efnisyfirlit
Þjónusta
Um þjónustuna
Þjónusta teymisins er fyrir fólk sem er í afplánun í fangelsi. Geðheilsuteymi fangelsa þjónar öllum fangelsum landsins.
Geðheilsuteymið sinnir almennri geðheilbrigðisþjónustu svo sem greiningu og meðferð geðraskana, fíknivanda og ADHD.
Þjónustan er þverfagleg og er veitt með:
Heimsóknum í fangelsin
Símaviðtölum
Fjarfundabúnaði
Geðheilsuteymi fangelsa vísar einnig á aðra geðheilbrigðisþjónustu sem þörf er á.
Samsetning fagstétta teymisins getur verið mismunandi hverju sinni, til dæmis geðlæknar, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar og iðjuþjálfar.
Samráð er á milli teymisins og annarra heilbrigðisstarfsmanna í fangelsunum auk þess sem samstarf er við meðferðarsvið fangelsismálastofnunar, félagsþjónustu og grasrótarsamtök sem láta sig varða málefni fólks í og eftir afplánun.
Teymisstjóri: Matthías Matthíasson
