Geðheilsuteymi austur, suður, vestur
Efnisyfirlit
Þjónusta
Þjónustan er fyrir einstaklinga 18 ára og eldri sem eru með langvinnan geðrænan vanda og í þörf fyrir þverfaglega meðferð og endurhæfingu.
Einstaklingar þurfa að hafa andlega og líkamlega getu til að nýta sér meðferð í geðheilsuteymi. Í vissum tilfellum er þörf á að einstaklingar nái ákveðnu jafnvægi áður en hægt er að meta þörf fyrir þverfaglega meðferð í geðheilsuteymi. Geðheilsuteymin leggja ríka áherslu á mætingu í úrræði og virkni á vegum teymis. Miðað er við að einstaklingar séu í að hámarki 50 prósent náms- og eða starfshlutfalli samhliða þjónustu geðheilsuteymanna.
Þjónusta geðheilsuteymis getur verið ótímabær ef:
Fæðingarorlof er fyrirhugað á næstunni eða löng fjarvera, til dæmis vegna dvalar erlendis stendur til.
Barn eða börn börn eru ekki með dagvistun.
Einstaklingur hefur orðið fyrir nýlegu áfalli eða atburði sem hefur áhrif á getu til að sinna meðferð í teymi.
Teymin hjálpa einstaklingnum að:
Efla styrkleika og áhugasvið sem valdeflandi leið til að ná bata.
Læra leiðir til að bæta líðan og ná jafnvægi.
Auka skilning, styrk og getu til að takast á við geðræna erfiðleika.
Í boði er:
Stuðningur til að auka virkni og endurheimta félagsleg hlutverk.
Regluleg námskeið um geðræn einkenni, grunnþarfir einstaklingsins og áhrif áfalla.
Mat á andlegu og líkamlegu ástandi og þjónustuþörf.
Fræðsla og meðferð fyrir einstaklinginn og fjölskyldu hans.
Mat og ráðleggingar á geðlyfjameðferð.
Áhersla er á:
Samskipti við aðrar stofnanir, þjónustuaðila og félagasamtök sem sinna einstaklingnum.
Vinnu á jafningjagrunni og aðkomu einstaklinga með reynslu af geðrænum erfiðleikum.
Semfellda meðferð og að skoða alla þætti sem hafa áhrif á andlega heilsu.
Geðheilsuteymin eru fyrir þau sem þurfa meiri og sérhæfðari þjónustu en er veitt á heilsugæslustöðvum.
Þjónustan er þverfagleg og veitt í viðtals- og fræðsluformi í húsnæði geðheilsuteymis.
Teymin hafa að leiðarljósi að skoða alla þætti sem hafa áhrif á andlega heilsu einstaklingsins.
Samsetning fagstétta hverju sinni getur verið mismunandi. Í teymunum starfa alla jafna hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar, geðlæknar, íþróttafræðingar, félagsráðgjafar, fjölskyldufræðingar og iðjuþjálfar auk notendafulltrúa og skrifstofustjóra.
Markmið þjónustu geðheilsuteymanna eru að:
Stuðla að og viðhalda bata.
Efla sálrænt og félagslegt heilbrigði einstaklingsins og fjölskyldu hans.
Hvetja til sjálfshjálpar og sjálfsvirðingar.
Styðja einstaklinginn í að lifa innihaldsríku lífi.
Fækka endur innlögnum og styrkja aðlögunarhæfni eftir útskrift af sjúkrahúsum.
Geðheilsuteymin hafa batahugmyndafræðina að leiðarljósi.
Batahugmyndafræðin leggur áherslu á að viðhalda von og skapa betra líf með því að byggja á styrkleikum.
Þessi hugmyndafræði byggir á samvinnu við einstaklinginn, þar sem markmið eru sett í sameiningu og stuðlað að sjálfsábyrgð og valdeflingu.
Geðheilsuteymi austur
Forstöðumaður Íris Dröfn Steinsdóttir
Skrifstofustjóri Ragnheiður Einarsdóttir
Yfirlæknir Oddný Ómarsdóttir
Geðheilsuteymi suður
Forstöðumaður Margrét Ófeigsdóttir
Skrifstofustjóri María Ósk Stefánsdóttir
Yfirlæknir Júlíus Ingólfur Schopka
Geðheilsuteymi vestur
Forstöðumaður Hrönn Harðardóttir
Skrifstofustjóri Sara Bragadóttir
Yfirlæknir Ingólfur Sveinn Ingólfsson
